Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Side 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Side 12
Nikulás Kr. Jónsson. Ég ætla að byrja á því hvað krakkanna í Reykjavík snerti. Þeirra leikvangur var yfirleitt fjaran hvar svo sem þeir áttu heima í bænum, að minnsta kosti strákanna. Þeirra aðalskemmtun var að stunda veiðiskap af klöppunum. Aflinn var að mestu leyti smáufsi. — Við hausuðum hann og flöttum aðallega til hei-zlu, og voru hinir eldri fúsir til að kenna okkur fyrstu hand- tökin við aðgerðina, og var þetta byrjunin hjá mörgum á sjó- vinnunni. Á þessum árum var sjór mik- ið stundaður á árabátum bæði til þorsk- og hrognkelsaveiða, og voru lendingarstaðirnir eða var- irnar, eins og það var kallað, á strandlengjunni innan frá Byggðarenda og vestur að Lág- holti. Það var því nóg athafna- svæðið bæði hjá Austan og Vest- anbæingum. — Það voru margir strákanna, sem áttu feður sína eða skyldmenni á bátunum, og voru því venjulega til taks þeg- ar þeir lentu, bæði til að sjá afl- ann og svo til að hjálpa til und- ir eins og kraftar leyfðu. Við vorum látnir ná í hlunn- ana og leggja þá fyrir framan bátana með hæfilegu millibili, því á þeim voru þeir látnir renna eða settir þegar bátarnir voru komnir upp fyrir flóðfar, eða það hæsta, sem sjór fór á háflæði. Voru hlunnarnir notað- ir til að skorða bátana með, þannig að þeim veitti aðeins til hafsins, og var það kallað að láta þá hallast í veiðina. Þegar búið var að ganga frá bátunum, var farið að hugsa um aðgerðina. Við strákarnir látnir sækja sjó í bala til að þvo fisk- inn upp úr, þegar búið var að fletja hann. Næsta skrefið hjá okkur var að hausa, og varð það að gerast rétt og vel. Þetta var Nikulás Kr. Jónsson: gert með venjulegum flatnings- hnífum og framkvæmt á þann hátt, að hálsinn á fiskinum var lagður á balabrún eða þar til gerðan búkka, síðan skorið á kverkina og beggja vegnakjálka og vætubeins, svo var ýtt á bol- inn og fylgdi þá roðið af kollin- um með. Þannig vildu gömlu mennirnir hafa það. Þeir byrj- uðu svo að fletja og fleygðu fisk- inum í balann, en við strákarnir að þvo fiskinn upp, áður en hann var saltaður. Það var sama dedúið við það. Við urðum að marg dífa fiskinum í sjóinn, og kreista hvern blóðdropa úrdálk- inum, en svo var sá hluti hryggjarins kallaður, sem eftir var í fiskinum, þegar búið var að fletja hann. Næsta skrefið var svo að læra að fletja. Það er lögð rík áherzla á, að öll hnífsbrögð væru rétt og hnitmiðuð. Hryggurinn tekinn sundur á réttum stað og hæfi- lega sniðskorinn, svo ekki yrði svokallaður blóðdálkur. Þetta var allt miðað við að fiskurinn yrði sem fallegastur, þegar búið var að salta hann og vaska, eins og það var kallað, og síðan þurrka hann á stakkstæðum við sól, og eftir gæðunum fór verðið, þegar lagt var inn í verzlunina. Þarna var stórum áfanga náð í sjó- vinnunni, og lýk ég hér öðru prófinu. Á þessum árum var oft lítið að gera hjá sjómönnum eftir að róðrar hættu á haustin, annað en að hugsa um veiðarfærin, standsetja þau, sem hægt var að nota aftur, og setja upp ný, bæði lóðir og net og búa út allt, sem því tilheyrði. Þarna kom nýr lærdómur til sögunnar, sem okkur strákunum var haldið vel að með barna- skólanáminu. Byrjunin var að láta okkur rekja í náiarnar fyr- ir þá fullorðnu þegar þeir voru að bæta net eða hnýta nýjar grásleppu- eða þorskanetaslöng- ur. Það leið þó ekki á löngu þar til fitjað var upp net til að hnýta upp á eigin spýtur. Þegar komið var heim úr skólanum og búið var að lesa lexíurnar, þá var tekið til óspililtra málanna við að rekja í nálarnar fyrir pabba og svo fyrir sjálfan sig, og síðan hnýtt fram á kvöld. Ennfremur var okkur kennt að riða utan um netakúlur, og búa sér til færi, ef maður skyldi fá að fljóta með. Ein var sú atvinna, sem við strákarnir vorum látnir vinna heilmikið við, en það var að gera að hrognkelsunum. Sú að- gerð var tvennskonar. Önnur að- ferðin var að fletja þau og salta, en hin var að skera þau upp og hengja á rár eða trönur, VÍKINGUR LITIÐ UM OXL NauSsyn sjóviiinukeiiiiKlu I landi og tii sjös, skrifuli og rökstutt af einum jieirra, /sem 61st upp I Iteykjavlk ít fyrsta tug: alclarinnar. 226

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.