Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Side 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Side 17
strönd Afríku norður til Suez- skurðsins. Gegnum Suez út í Miðjarðarhaf. Meðfram strönd- um Tyrklands og Grikklands. — Heimsækja Júgóslavíu! — Hald- ið skyldi svo áfram meðfram Italíuströnd, meðfram frönsku og spænsku ströndinni, gegnum Gíbraltarsund, — suður með Afríkuströnd til Suður-Rhódes- íu, sigla síðan yfir suður At- lantshaf að ströndum Brazilíu. Þá skyldi haldið norður á bóg- inn meðfram austurströnd Suð- ur-Ameríku, gegnum Panama- skurðinn, aftur út í Kyrrahaf, norður með vesturströnd Mið- Ameríku, Mexíkó og Kaliforníu og átti svo hnattferðinni að ljúka í Los Angeles. Áætluð vegalengd var 75 þús. sjómílur og átti ferðin að taka um 2 ár. Ég var ráðinn skip- stjóri. — Farkostur okkar, sem hlaut nafnið ,,Silfurdöggin“ var aðeins 30 fet á lengd, en fyrir 3 menn var hann rúmgóð fleyta. Að morgni dags 12. sept. var öllum nauðsynlegum undirbún- ingi lokið og í blíðskaparveðri sigldum við vonglaðir út Ma- Branko Milinkovich. Sulturinn var ekki það versta. VÍKINGUR home flóann, og komum til Liverpool á Nova Scotia eftir á- nægjulega ferð. — Daginn eftir héldum við ferðinni áfram í átt- ina til Shelbonuerne, en á miðri leið þangað byrjuðu erfiðleik- arnir. Talstöðin bilaði skyndi- lega og töfðumst við í tvo daga vegna viðgerðar, en sagan end- urtók sig á leiðinni til Clark Harbour, en þar fékk ég nýja stöð. En nú tóku aðrir erfiðleikar við. Annar félagi minn ti'lkynnti mér, að hann treysti sér ekki til að halda ferðinni áfram. Hann hafði þjáðst af sjóveiki allt frá upphafi ferðarinnar. Tók hann saman föggur sínar og kvaddi okkur, en samkvæmt gerðum samningum átti hann ekki til- kall til þúsund dalanna, sem hann hafði lagt fram. Við héldum nú tveir áfram ferðinni í áttina til Yarmouth á Nova Scotia. Ekki höfðum við siglt lengi áður en hinn félagi minn varð líka heltekinn af sjó- veiki og þar við bættist ofsaleg sjóhræðsla. — Er ekki að orð- lengja, að við komuna til Yar- mounth tók hann saman sitt hafurtask og hvarf á brott, og var ég nú einn eftir skilinn með bátinn og hnattferSar áætlunina! Ég íhugaði nú allar aðstæður og ákvað að halda ferðinni áfram einsamall á „Silfurdögginni,“ hvað sem tautaði, og að morgni dags 27. september lagði ég upp fráYarmount í sólskini og blíðu- veðri. Hraðinn var 6 sjómílur og þegar ég hafði siglt framhjá Jurcher Shoal vitanum þrem stundum síðar, setti ég stefnuna á Bar Harbour, sem var 81 sjó- mílu sunnar á ströndinni. Ég hafði siglt í aðrar 3 klst. þegar ég varð var við að leki var kominn að bátnum. Eftir staðarákvörðun minni taldi ég mig vera staddan um 45 mílur frá meginlandi Nova Scotia og 49 mílur frá Bar Harbour. Ég tók strax til við austurinn og hamaðist allt hvað af tók. Vélin hafði stöðvast og ég reyndi að þurrka hana, en rafhlaðan Jón Þorvaldsson. reyndist kraftlaus, svo ég varð að gefast upp við vélina og snúa mér að austrinum. Veðrið verns- aði og myrkrfð skall á. Sjávar- straumurinn var harður og lá beint til hafs. Ég var ekki hræddur, enda þótt ekki væri það þægileg til- finning að reka hjálparlaust til hafs á 30 feta bátskel í stormi og náttmyrkri. Ég átti nægilegan mat í 14 daga, vatn og eldsneyti til að kveikja eld og vekja athygli skipa, — en talstöðin hafði strax blotnað og virkaði ekki. Ég setti upp mastur og reyndi að sigla, en vindátt stóð á móti straum og auk þess kunni ég lítið með segl að fara, svo ég gafst upp við alla siglingu. Ég stóð nú tímum saman við dæluna og tókst mér að finna hvaðan lekinn kom, en það var gegnum brotnaða útblástur- leiðslu. Ekki hafði ég tæki til að þétta lekann, en vafði leiðsluna eins og ég bezt gat. Ég einbeitti nú orku minni að því að vekja athygli annarra skipa á mér, og stóð tímum sam- an uppi á yfirbyggingu bátsins og gáði árangurslaust að skipa- ferðum, og aftur dimmdi af nótt. Ég reyndi að elda mat, en tókst ekki vegna sjógangs, svo ég íét mér nægja kaldan mat og fékk mér bjór við. 231

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.