Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Síða 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Síða 22
Gulleitarmenn ganga á land í Seattle, klyfjaðir gulli. sem síðar varð heimsfrægt und- ir nafninu „Klondike-æðið.“ Hann tók upp hníf og fletti börknum af stóru grenitré og skrifaði með blýanti á hinn slétta flöt eftirfarndi orð: „Ég helga mér til eignar 50 ft. svæði frá þessu tré og niður með ánni. Ég geri það í nafni þess réttar, sem felst í því að ég fann þetta svæði.“ 17. ágúst 1896 G. Cormack. Niðri í bjórkrá Pheés í Forty Mile skellti hann skotfæratösk- unni með gullinu í á afgreiðslu- borðið. Og þó fullt tillit væri tekið til gullsins, þá hlógu menn samt að Lygagogga. En næstu nótt lagði hver bát- urinn af öðrum af stað til að leita gulls. Allir menn búandi á norðvest- ursvæðinu lögðu upp til Thron- duick — til þess staðar, sem enginn gat borið rétt fram og hlaut því fljótlega afbökunina Klondike. Koma gullgrafarmanna með E.S. Portland. Á þessu tímabili bárust frétt- ir mjög seint. Fáir vissu því um hvað var að gerast í Klondike. Fyrstu gullleitarmennirnir fengu því góðan tíma við iðju sína. Heimurinn að Alaska undan- skyldu, fékk fyrst hugmynd um hinn mikla gullfund þegar e.s. Portland 17. júlí 1897 lagðist að bryggju í Seattle. Farþegar með skipinu voru margir gullleitar- menn, sem höfðu með sér heppn- ina, þúsundir manna biðu komu þeirra. „Sýnið okkur gullið! Sýnið okkur gullið! hrópaði mannfjöld- inn. Og skeggjuðu gullleitar- mennirnir héldu á lofti stærstu gullmolunum sigri hrósandi. — Þegar þessir tötrum klæddu og veðurbitnu menn gengu niður landgöngubrúna með fulla poka og leðurtöskur af gulli, urðu þrengslin æðisgengin. Gullgraf- ari með gullhnalla upp á lOO.ooo dollara varð að taka í þjónustu sína 2 hafnarverkamenn til að bera gullsekkinn á land. Fjöldinn 'eggur af stað. Mannfjöldinn, sem virtist í dáleiðslu elti gullleitarmennina hvarvetna og hyllti þá sem hetj- ur, en þeir sögðu sögur af ævin- týrum sínum í Klondike og drógu hvergi af. Allur bærinn var mettaður gullæðinu, og næstu daga ók enginn strætisvagn, vegna þess að strætisvagnastjórarnir voru allir farnir áleiðis til Klondike. Á viku tímabili lögðu meira en 2000 manns áleiðis til Klondike frá Seattle. Við höfnina biðu mörg hundruð manna eftir skip- rými til að komast til Alaska. Enginn þorði að fara heim af ótta við að komast ekki með. En margir urðu lengi að bíða, því að skipshafnirnar stungu líkaaf til að freista gæfunnar sem gull- grafarar. Alla dreymdi um gull og á- ætlað er að 50.000 menn hafi lagt af stað til Klondike. Millj- ónir verzlunarmanna gerðu risa- business í tengslum við þessa „þjóðflutninga," sem vissulega má svo nefna. 236 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.