Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Qupperneq 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Qupperneq 23
Allt í einu var Klondike kom- in í tízku og allt, sem tengt var Klondikenafninu seldist með á- gætum. Sem dæmi má nefna: Klondikegleraugu, Klondike- eyrnaskjól, Klondikegúmmístíg- vél, Klondikemeðul og margt fleira. Ekki leið á löngu þar til öll Ameríka varð snortin af gullæð- inu. Hjólaskipin sem sigldu eftir Jukonfljótinu til Alaska voru yf- irfull af fólki. Farþegarnir, sem keyptu farrými fyrir 10 sinnum hærra verð en vanalega, voru svo margir að líkja mátti við síld í tunnu. Margir smíðuðu sjálfir báta og pramma úr trjá- bolum, sem þeir felldu og sigldu á þessum farkostum eftir straumhörðum ánum án nokkurs tillits til ríkjandi hættu. Þeir,. sem á landi ferðuðust, urðu einnig fyrir ekki minni hættum. Stórhættulegt var að fara um hin 2000 metra háu fjallaskörð, sem víða eru á þess- ari leið. „City of Columbia“ með kvennaskara innanborðs. Hópur kvenna lagði leið sína til Klondike. 500 konur á gift- ingaraldri tóku sig saman um að fara norðureftir og krækja sér í ríkan gullgrafara fyrir eigin- mann, áður en þeir kæmu aftur til baka í menninguna. Foringi leiðangursins hét Hannah Gould. Hún tók á leigu gufuskipið „City of Columbia.“ — Ferðin hófst í New York og ákveðið var að sigla suður fyrir Cape horn til Seattle. — Fyrir burtför voru mörg hundruð kassar af kampa- víni fluttir á skipsfjöl. Konurn- ar fullyrtu, að ekkert betra með- al væri til gegn sjóveiki en kampavínið. Þegar skipið kom að Magellan- sundi lenti það í geysimiklu fárvirði og hófu þá konurnar drykkju sína. Skömmu seinna bar skipið upp á blindsker fram- an við Tierro del Fuego og í heilan sólarhring varð fólkið um borð að horfast í augu við dauðann. — Að lokum komust björgunarskip á staðinn og öll- um varð bjargað. En slysið dró engan veginn kjarkinn úr konunum. Þeim tókst að útvega 14000 dollara til viðgerðar á skipinu og héldu síð- an ferðinni áfram. Að lokum lagðist „City of Columbia“ að bryggju í Seattle. Og þar höfðu konurnar áður pantað ferðabúnað til Klondike, sem átti að vera til er þær kæmu. En enginn slíkur útbún- aður var fyrir hendi við kom- una og leystist þá hópurinn upp. Héldu þær síðan dreifðar heim aftur og án milljónera. Höfuðborg Gulllandsins. Einn fyrstur manna, sem kom til Klondike eftir gullfund George Cormacks árið 1896, var maður að nafni Joe Ladue. Hann skipulagði höfuðborg gull- landsins og skírði hana í höf- uðið á kanadískum jarðfræðingi, George M. Dawson. Joe Ladue fékkst ekki sjálfur við gullgröft — hann auðgaði sig á annan hátt. Fyrir brauð og egg keypti hann byggingar- lóðir — kaupskapur, sem síðar gaf mikið í aðra hönd. Eftir eitt ár var verðið á byggingarlóðum meðfram aðalgötu Dawsonsbæj- ar komið upp í 15000 dollara fyrir hvern meter. Þegar á sumrinu árið 1898 voru í bænum tveir bankar, tvö dagblöð, þrjú sjúkrahús, fjórar VÍKINGUR 237
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.