Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Síða 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Síða 27
Tryggvi Blöndal, skipstjóri. Friðrik Jónsson, 1. stýrimaður. Guðm. Erlendsson, yfirvélstjóri. M.s. Esja strandferóaskip í aldarfjórðnng Vélstjórar eru nú, auk yfir- vélstjóra, Jens Þórðarson 2. vél- stjóri, Sigurður Guðmundsson 3. vélstjóri og Jón Jóhannsson 4. vélstjóri. Bátsmaður er Stefán Sigur- björnsson. Ekki eru nokkur tök á að telja upp, hverjir hafa verið á m.s. Esju á þessum aldarfjórð- ungi, frekar en gert hefur verið hér að framan. En af núverandi skipverjum hafa þessir tveir menn verið lengst samfleytt: Stefán Sigurbjörnsson háseti og bátsmaður í 10 ár, og Böðvar Steinþórsson matreiðslumaður og bryti í 9 ár. Ekki má ljúka við þessar lín- ur, án þess að minnast á þær miklu umræður, er uppi voru á þeim tíma, um hvort selja ætti gömlu Esju, og byggja hina nýju, og hvort byggja ætti strandferðaskip á þann hátt, sem gert var. Ekki var laust við, að öfundar væri að gæta ein- hversstaðar, um að ríkisskip yrði á undan öðrum aðila til að byggja nýtízkulegt farþegaskip. Ég held, að ekki sé á neinn hall- að, þó sagt sé, að þakka megi Pálma Loftssyni fyrrv. forstjóra Böðvar Steinþórsson, bryti, og Guðjóni F. Teitssyni þáver- andi skrifstofustjóra öðrum fremur, að úr byggingunni varð. Lögðu þeir fram ýmsar áætlan- ir og greinargerðir til yfirvald- anna, og var ekki staðar numið fyrr en þáverandi ráðherra, Skúli Guðmundsson, og síðar löggjafarvaldið höfðu gefið sitt samþykki. Og þær áætlanir, sem þessir menn gerðu, stóðust að öllu leyti það tímabil, sem ætl- ast var til. Engin orð lýsa því mikla láni, að skipið skyldi koma til landsins í upphafi síðari ó- friðar, en allur frekari dráttur hefði haft í för með sér mikið ófremdarástand varðandi strand- ferðaþjónustu, öll styrjaldarárin. Sjómannablaðið Víkingurinn þakkar m.s. Esju störf hennar og þjónustu fyrir land og lýð á þessum aldarfjórðungi, og árnar henni, skipstjóra og áhöfn allri, gæfu og gengis á ókomnum ár- um. böst. VÍKINGUR 241

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.