Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Síða 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Síða 29
unganna, sem þar er skráð, hafi hjálpað til, svo að norsku þjóð- inni tókst að halda vöku sinni, þar til sigur var unninn. En að þessar sögur voru skráðar, megi þakka íslenzku þjóðinni. Ekki treysti ég mér til að spá neinu um það, hvort við megum vænta, stuðnings, eða hinu gagn- stæða frá Svíum, við málstað ís- lands. En ég geri mér ekki háar hugmyndir um stuðning þaðan, því miður. Ástæðan er sú, að þeir hafa ekki verið mjög við- bragðsfljótir til stuðnings mál- stað íslands, þegar íslenzkir hagsmunir hafa verið í veði. — Samanber afstaða þeirra til landhelgismálsins, og við lýð- veldisstofnunina, og nú síðast til Loftleiðamálsins. Talið hefur verið, að við þurf- um ekki að kvíða því, að mál- ið nái ekki samþykkt í danska Ríkisþinginu, því þar muni öfl- ugur meirihluti fylgja því fram til sigurs, og muni það verða samþ. í sinni upphaflegu mynd, eftir því samkomulagi, sem gert var á milli íslenzkra og danskra ráðamanna árið 1960, og þá var samþykkt í Ríkisþinginu. En á meðan eins er hamast gegn málinu og nú er gert, er ekki gott að sjá fyrir, hvern ár- angur slíkur bægslagangur ber. Þáttur Grænlandsþingmanna og Flateyjarbók. Nú virðast tveir mótstöðu- menn hafa bætzt í hópinn í Rík- isþinginu, það eru fulltrúar Grænlands, og er í því sambandi sérstaklega rætt um Flateyjar- bók, og það rökstutt, að af því að þar er greint frá fundi og landnámi Grænlands, og löndun- um í vesturálfu heims og til- raunum til landnáms þar megi íslendingar alls ekki fá Flateyj- arbók afhenta. Þetta virðist vera næsta furðu- leg afstaða Grænlendinganna. — Sérstaklega þó þegar höfð er í huga þjóðsagan, sem virðist hafa verið tekin góð og gild. Að þeg- ar „Hans Egede“ kom til Græn- lands. eftir tveggja til þriggja VlKINGUR alda einangrun Grænlands og átti von á að hitta afkomendur hinna íslenzku landnema, ,,þá voru þeir allir horfnir, en ein- tómir Eskimóar í landinu." Því var svo slegið föstu að Eskimó- arnir hefðu upprætt hina þrek- miklu afkomendur landnemanna íslenzku. sem voru búnir að reisa þar blómlegar byggðir ogaðlaga sig lífsskilyrðum þar, eftir meira en fjögurra alda búsetu. I Flateyjarbók er nokkuð greint frá Landnámi Grænlands og siglingum og landafundum hinna fornu íslenzku sæfara. — Ekkert 'er hinsvegar í Flateyj- arbók um sögu Grænlands og þess fólks, sem lifað hefur þar, eftir að Hans Edge stofnaði sambandið að nýju. En ástæðan til einangrunarinnar var sú að konungsvaldið var búið að taka siglingarleyfið af íslendingum og Grænlendingum, en þeir sem áttu að halda uppi siglingunum, skorti dug og manndóm til að gera skyldu' sína. Ég vil þó taka það fram. að ég er ekki í þeirra hópi, sem trúir því að afkomendur ís- lenzku landnemanna í Græn- landi hafi verið upprættir á þann hátt, sem ,,þjóðsagan“ greinir frá, heldur tel ég að eft- ir að hin algjöra samgöngu- stöðvun var orðin að veruleika, hafi þeir af illri nauðsyn smátt og smátt tekið upp lifnaðarhætti hinna heiðnu veiðimanna, sem voru dreifðir um hin nálægu lönd Grænlands, og einnig voru komnir yfir til Grænlands, og í vaxandi mæli leituðu inn í byggðir hinna kristnu Græn- lendinga. Afleiðingin var svo blóð- blöndun beggja kynstofnanna og nýr kynstofn varð til, sem ber glögg einkenni beggja stofn- anna á víxl, bæði í líkamsbygg- ingu, háralit og augnalit. — En tungu sinni og trú höfðu þeir glatað og týnt, þegar sambandið við þá náðist á ný. En þótt þeir séu að nokkru leyti afkomendur hinna fornu, íslenzku frumbyggja Grænlands, þá breytir það engu gagnvart þeirri staðreynd, að Flateyjar- bók er skrifuð af íslenzkum snillingshöndum, og í sögnunum um landnám og fund Grænlands og landafundina á norðurhjara heimsins, greinir hún frá fram- úrskarandi afrekum íslenzkra manna á sviði siglingartækni og sjómennsku. Hún á því hvergi annarsstaðar heima, en á ís- landi. íslendingum ber, og þeir eru staðráðnir í því að koma upp veglegu safnhúsi hér í Reykja- vík, fyrir öll íslenzku handritin, með fullkomnustu og beztu að- stöðu til vísindarannsókna á þeim. Þeir setja nú þjóðarheið- ur sinn að veði fyrir því, að þessu verði komið í verk nú á á næsta ári og árum, þá verður ekki löng bið þess að hinir snjöllu íslenzku vísindamenn á þessu sviði get farið varfærnum höndum um hina helgu dóma hins ómetanlega menningararfs forfeðranna. Voru það bjargráð að flytja handritin? í sambandi við það sem sagt hefur verið, að það hafi bjarg- að handritunum frá glötun, að þau voru flutt til Kaupmanna- hafnar á tímum Árna Magnús- sonar, má benda á nokkrar stað- reyndir. Mikill fjöldi kassa, sem innihéldu handritasendingar til Danmerkur frá íslandi, komust aldrei á leiðarenda. Lentu ýmist á sjávarbotninum eða í höndum sjóvíkinga. Því á þessu tímabili stóðu yfir stöðugar styrjaldir, með allskonar róstum og sjórán- um, sem slíku ástandi fylgir. Þá má ekki gleyma hinum hörmulega bruna Kaupmanna- hafnar, þegar mikill fjöldi hand- rita brann, þótt tekist hafi að bjarga mörgum hinna dýrmæt- ustu, en þó ekki nærri öllum af þeim. Þá minnist ég þess að hafa fyrir nokkrum árum lesið um það í dönsku blaði, að handritin hafi þótt hið prýðilegasta efni, á dögum Kristjáns IV., til að notast í forhlöð við flugeldasýn- ingar á gamlaárskvöldum. Ekki 243

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.