Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Blaðsíða 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Blaðsíða 30
þykir mér því ósennilegt, að margfalt meira hafi glatast af þeim fyrir það, að þau voru flutt úr landi, en glatast hefði af þeim, þótt þau hefðu fengið að geymast á íslandi. Hinn lagalegi réttur Dana? Sagt hefur verið: „Handritin eru lagalega dönsk þjóðareign.“ I því sambandi hefur handahófs- mati verið slegið fram um verð- mæti handritanna. Þeim mætu mönnum, sem vilja styðja af- hendingu þeirra á meðal Dana, hefur verið borið það á brýn að þeir vildu hafa stórfé af dönsku þjóðinni, og hafa verið nefndar á annað hundrað danskar krón- ur, í því sambandi, á hvern ein- stakling í Danmörku. Þetta er rökstutt með því að íslenzku handritin séu danskur menning- ararfur og dönsk þjóðareign, vegna þess að Árni Magnússon hafi arfleitt Kaupmannahafnar- háskóla að handritunum. — En Kaupmannahafnarháskóli sé þjóðareign Dana, og lagalega sé eignarétturinn hjá Dönum. Þessu verður bezt svarað með því að minnast ennþá einu sinni á þá staðreynd, að á þeim tíma, sem handritasöfnunin stóð yfir af hálfu Árna Magnússonar o.fl. var Kaupmannahöfn hin raun- verulega höfuðborg íslands. — Þangað fór svo að segja allur arður þrældóms íslenzku þjóðar- innar. Kaupmannahafnarháskóli var eini háskólinn, sem íslend- ingar höfðu aðgang að, til æðri mennta. Hann var því háskóli íslendinga engu síður en Dana. Enda munu til gögn um það í skjalasöfnum, að ýmsar menn- ingarstofnanir í Kaupmanna- höfn voru að töluverðu leyti byggðar fyrir íslenzkt fjármagn, sem þangað var sótt eftir ýms- im leiðum á þessu tímabili arð- ráns og kúgunar. Það er líka augljós vottur þess, að prófessor Árni Magnús- son leit á Kaupmannahafnarhá- skóla sem menntasetur íslend- inga. Það mun vera höfuðorsök- in til þess, að hann arfleiddi há- 244 skólann að safninu, hafi honum að öllu leyti verið sjálfrátt, þeg- ar endanlega var gengið frá arf- leiðsluskránni, sem af ýmsum hefur verið dregið í efa, en þá var hann að dauða kominn. Það að hann tók fram í arfleiðslu- skránni, að vöxtunum af eignum sínum skyldi varið til þess að styrkja efnilega íslendinga til æðri menntunar og til vísinda- starfa, bendir eindregið til þess, að hann hafi álitið háskólann menntasetur íslendinga. Þá má einnig benda á, að fleiri voru sendir út af „örkinni," til að kló- festa handritin, en hinn þjóðlegi og sanni íslendingur, prófessor Árni Magnússon. Það voru send- ir menn samkvæmt konunglegum tilskipunum, til að afla allra þeirra handrita, sem tök væri á, að ná í. Þarf víst ekki að efast um, að ýmsum aðferðum hafi verið beitt, til að árangur yrði sem beztur og mestur, í þágu hins „konunglega landsóðurs af guðs náð.“ Ég fæ því ekki séð að hinn lagalegi réttur sé ótvíræður, eft- ir að Kaupmannahafnarháskóli er ekki lengur menntasetur ís- lendinga. Nú eftir að Háskóli ís- lands er tekinn við því hlut- verki, tel ég ótvírætt, að sam- kvæmt arfleiðsluskránni eigi Háskóli Islands að hafa veg og vanda, af að varðveita handrit- in og íslenzka þjóðin að leggja til safnhús fyrir þau, sem yrði svo á vegum háskólans og þar til kjörinna handritasafns- nefnda, eins og þegar er búið að ákveða. Lagalegi og siðferðislegi rétturinn til handritanna er því, að mínu áliti, alveg ótvírætt hjá íslendingum. Handritin eru íslenzkur menn- ingararfur og hinn lagalegi og siðferðislegi réttur er íslendinga. Þá má benda á að handritin eru ótvíræður menningararfur til Islendinga frá fyrri kynslóð- um, sem af ótrúlegri elju oglist- fengi unnu þessi verk, oft við mjög erfiðar aðstæður. Skiptir þar engu máli, þótt efni þeirra greini frá einhverju, sem gerst hefur hjá öðrum þjóðum, þau eru engu að síður menningar- arfur þeirrar þjóðar, sem lista- verkið hefur samið, í þessu til- viki eru það íslendingar. Það er því ótvírætt menningararfur Is- lands. Hins vegar mun öllum þeim, sem þurfa að sækjaheim- ildir í handritin, standa sú leið opin, í samvinnu við íslenzka trúnaðarmenn. Handritin eru hvorki menn- ingararfur Norðmanna, Svía né Dana, eða Færeyinga, en í þeim hafa íslendingar skráð margar heimildir úr sögu þessara þjóða, vegna þess að ritmenningin var þegar þau voru skráð, á háu stigi hjá Islendingum, þegar hún mun hafa verið næsta bágborin hjá hinum þjóðunum, en vegna þessarar ritmenningar Islend- inga, geta nú hinar Norður- landaþjóðirnar veitt sér þann munað að afla sér verulegra heimilda úr sögu sinni, áður en ritöld hófst hjá þeim. — Þetta virðist mér að þær ættu að kunna að meta. Bæði lagalega og siðferðis- lega er því rétturinn íslands og ef þessar þjóðir vilja nú hafa réttlætið í heiðri, og ef sú hug- sjón, sem nefnd hefur verið nor- ræn samvinna, á að sanna gildi sitt, eiga allir ábyrgir menn á Norðurlöndum að stöðva nú allt leiðinda þjark um málið og af- henda handritin Islendingum, í samræmi við það samkomulag, sem gert var á árinu 1960 og samþykkt í danska Ríkisþinginu með miklum meirihluta. Engin óvild til Dana, heldur þvert á móti. Þótt ég hafi dregið hér fram nokkrar skuggahliðar úr sambúð íslendinga og Dana á því tíma- bili, sem handritin voru flutt úr landi, til Danmerkur og fleiri landa, þá vil ég leggja áherzlu á það, að ég geri það alls ekki vegna neinnar óvildar til dönsku þjóðarinnar, þvert á móti ber ég djúpa virðingu fyrir henni. Ég VlKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.