Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Side 37
Höfrungur 12,46 tonn, smíðaður í
Vestmannaeyjum 1920.
Ólafur Einarsson, Búðarfelli
Ve., var fæddur að Holti undir
Eyjafjöllum 10. jan. 1897. For-
eldrar: Einar Halldórsson og
Margrét Bárðardóttir. — Ólafur
fór 10 ára gamall með föður sín-
um til Vestmannaeyja. Ólafur
vandist fljótt öllum sjávarverk-
um eins og margir ungir menn
á þeim tíma. Ólafur byrjaði sjó-
mennsku á „Höfrungi 1“ og var
á honum óslitið til 1920, að hann
tók við formennsku á honum, en
það var aðeins ein vertíð. Þá
létu sömu eigendur smíða Höfr-
ung II og tók Ólafur við honum
og hafði formennsku á honum til
vertíðarloka 1927, en þá missti
Ólafur heilsu, svo að hann varð
að hætta sjómennsku.Ólafur var
traustur og ábyggilegur formað-
ur. Hann lézt 27. janúar 1928.
Ármann Friðriksson.
Olga 13,91 tonn, smíðuð í Vestmanna-
eyjum 1920.
Ármann Friðriksson, Látrum
Ve., er fæddur á Látrum Ve. 21.
nóv. 1914. Foreldrar: Friðrik
Jónsson og Sigurlína Brynjólfs-
dóttir. Ármann ólst upp hjá for-
eldrum sínum.
— Hann byrjaði ungur sjó-
mennsku á ýmsum bátum. For-
mennsku byrjaði hann 1939 þá
með „Olgu II,“ síðar „Isleif.“ Á
þeim bát var Ármann aflakóng-
ur. Síðar kaupir hann bát sem
var „Gunnar Hámundarson.“ —
Bát þennan skírði Ármann
„Friðrik." Síðan lét hann byggja
50 lesta bát, sem „Friðrik Jóns-
son“ hét. Bát þennan fór hann
með til Reykjavíkur og hafði
formennsku á honum þar. Síðar
kaupir hann „Helgu 1“ og hafði
formennsku á henni þar til hann
missti hana í sjóinn suður af
Grindavík. Eftir það kaupirhann
„Helgu 11“ og hefur haft for-
mennsku á henni fram á þennan
dag. Ármann var fljótt farsæll
og stjórnsamur formaður. Hann
er nú orðinn landsþekktur mað-
ur fyrir stjórnsemi og aflabrögð.
Jóhann Guðjónsson.
Sigríður 12,00 tonn, smíðuð í Hafnar-
firði 1920.
Jóhann Guðjónsson, Kirkju-
bæ Ve., var fæddur 20. des. 1901
að Kirkjubæ í Ve. Foreldrar:
Guðjón Eyjólfsson og Halla
Guðmundsdóttir. Jóhann ólst upp
hjá foreldrum sínum á Kirkju-
bæ.
Jóhann byrjaði ungur sjó-
mennsku í Eyjum, fyrst á
„Emmu“ hjá Eiríki Ásbjörns-
syni og síðar á fleiri bátum. —
Formennsku byrjaði hann með
„Sigríði 11“ veturinn 1923 en
eftir þá vertíð pantaði hann bát
frá Danmörk með Gísla J John-
sen, sem var „Soffía,“ en Jó-
hanni entist ekki aldur til að sjá
hana, því að hann féll fyrir borð
af „Friðþjófi" 20. ágúst það
sama ár og drukknaði. Það stóðu
miklar vonir að Jóhann yrði
framtíðarformaður, ef líf hefði
enst lengur, því að hann var
dugnaðarmaður og framsækinn.
VÍKINGUR
251