Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Page 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Page 38
Fundur 11. desember 1894. Samþykkt atS skrifa útgerðarmönn- um um að styöja að því, að útvigtun til liáseta færi fram í landi. Fundur, 8. janúar 1895. Ritari félagsins kom með tillögu um að sjóður félagsins væri lagður í Söfnunarsjóð íslands, með því að þar mundi verða borgaðir hærri vextir en í Landsbankanum, og sjóðurinn að öðru leyti þar eins vel geymdur. (Málinu frestaS). Fundur, 15. janúar 1895. Formaður mótfallinn að ávaxta sjóð félagsins í SöfnunarsjóSi. Vildi að fé- líigiS hefSi óbundnar hendur um á- vöxtun sinna peninga og næg trygging væri að baki. Fundur, 12. febrúar 1895. Formaður vakti máls á því, að hann hefði fæi't í tal við Landshöfðingjann hvort honum sýndist ráðlegt að færa peninga sjóðsins úr Landsbankanum og í Söfnunarsjóðinn, og hefði hann verið því fremur meðmæltur, ef fé- lagsmenn sjálfir ekki vildu hafa neinn veg eður vanda af útlánum pening- anna. I sambandi við þetta lagði fund- arstjóri þessar spumingar fyrir fund- inn: 1. Iivort þeir vildu færa peningana, og í öðru lagi hvort þeir vildu færa þá strax eður síðar. Út frá þessu máli urðu alllangar umræður og urðu ýmsir þess hvetj- andi að peningar sjóðsins yrðu ávaxt- aðir í Söfnunarsjóði Islands framveg- is, undir þeim almennt viðurkenndu skilyrðum þar, að höfuðstóllinn sé aldrei borgaSur. Margir félagsmenn voru því mótfallnir og álitu það ekki heppilegt að binda svo hendur sínar fyrir aldur og ævi, að ekki væri hægt að taka peningana út þaðan, ef menn á einhvem liátt sæju sér fært aS á- vaxta þá með hærri rentum á jafn- tryggan hátt. Eftir alllangar umræður til og frá, kom tillaga frá Jóni ÞórS- arsyni um að peningar sjóðsins væra færðir úr Landsbankanum og í Söfn- unarsjóð íslands og var hún sam- þykkt. FormaSur áleit ekki óheppilegt að menn létu peningana inn til 10 ára tímabils, fyrir það fyrsta, því ef eitt- livað breytti um til batnaðar á þessu 10 ára tímabili, þá gætu menn ráðstaf- að því á annan veg. Annars þyrfti ekki annaS en endurnýja skilmálann við SöfnunarsjóSinn og láta þá vera kyrra. Þessu vora margir samdóma. Því næst kom fram tillaga frá Stefáni Pálssyni um að peningamir væra lagðir inn til 10 ára fyrir það fyrsta. Hún var studd og borin undir atkvæði og samþykkt. Ásgeir Þorsteinsson, fyrsti formaður öldunnar. Fundur, 26. febrúar 1895. Rætt um breytingar á farmannalög- unum frá 22. marz 1890. Mættir á fundi: M. T. Bjamason, skólastjóri og Tryggvi Gunnarsson, bankastjóri. Fundur, 1. október 1895. Árstillagið er kr. 5. — Inntökugjald kr. 3. Fundur, 28. október 1895. Lát formannsins, Ásgeirs Þorsteins- sonar. Samþykkt að kosta útförina og gera liana vel úr garði. Samþykkt að láta yrkja erfðaljóð. Fundur, 5. nóvember 1895. Samþykkt að leggja fram á næsta fundi þær skýrslur eSur athuganir er menn kunna aS hafa gert síðastliðið útgerðarár. Fundur, 3. desember 1895. Samþykkt að hafa skemmtun í fé- laginu um jólaleytiS til minningar þess, að sjóður félagsins væri nú orð- inn kr. 1.000.00 og gæti því byrjað sín ætlunarverk að hjálpa nauðstöddum. Fundur, 14. janúar 1896. StyrktarsjóSur í árslok 1895 kr. 1.078.75. Fundur, 4. febrúar 1896. Bjarni Sæmundsson heldur fyrirlest- ur um flatfiska við strendur landsins. Samþykkt var að reyna að koma því á, aS allur aflahlutur yrði greidd- ur í peningum, en ekki úttekt, eins og nú væri siður. Fundur, 23. febrúar 1896. AS öllum félagsmönnum sé heimilt að ráða sig til næsta árs, fyrir núver- andi kjör, en ráði sig einhver fyrir minna, varðar þaS sektum allt að kr. 10. Fundur, 28. febrúar 1896. Rætt um upptöku 2ja YestfirSinga í félagið, var mikið rætt og síðan fellt með ölliun greiddum atkvæðiim gegn einu. Fundur, 10. nóvember 1896. Rætt mn að fá leyfi hafnamefndar til aS færa til á höfninni uppskipun- arbáta, er bægðu fiskiskipum frá því aS leggjast grunnt á höfninni. Páll Hafliðason vakti máls á því, aS þar sem nú væri í ráðum að byggja vita eSur vitastöpul á Garðsskaga, þá sýndist sér engu minni nauðsyn aS fá einhverja týru á Stafnestangana. — Frestað til næsta fundar. Guðmundur Stefánsson vakti máls á því, hversu nauðsynlegt væri að gjöra eitthvaS til þess aS menn gætu fengið tilsögn í ýmsu verklegu er fyrir kem- ur á þilskipum eða með öðrum orðum, að stofnaS yrSi til verklegrar stýri- mannakennslu. Kristján Bjamason að biðjaAlþingi um skip, sem þannig væri útbúiS, aS menn gætu fengið verklega kennslu og æfingu. Samþykkt að tala við skólastjóra Stýrimannaskólans að halda fyrirlest- ur. Fundur, 22. desember 1896. Formaður gat þess, aS Valdimar Bjarnason liefSi óskað að fá að koma inn á fundinn og bera upp mikilsvarð- andi málefni fyrir sjómannafélagiS „Báran.“ Samþykkt, en liann mætti ekki. Bréf, þar sem óskað er eftir að Flateyingar fengju að gerast félags- VlKINGUR 252

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.