Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Síða 47

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Síða 47
Tuttugu kennarar eru ráðnir að Sjómannaskólanum í vetur. Hér sitja nokkrir í fremstu röð. Talið frá vinstri: Helgi J Halldórsson, magister, nýkominn heim sem háseti á Jóni Kjartanssyni SU í sumar (íslenska og enska); Þorsteinn Gíslason, skipstjóri á Jóni Kjartanssyni SU (danska, íslenzka, reikningur og siglingafræði); Ingólfur Þórðarson, skipstjóri á Hval (siglingafræði, stærðfræði og sjómennska); Jónas Þorsteinsson, stýrimaður (sömu fög); Karl Guðmundsson (sömu fög, líka eðlisfræði og veðurfræði); Benedikt Alfonsson (sömu fög að undanskildri eðlisfræði) og Þorsteinn Valdimarsson, skáld (íslenska og danska). (Ljm. Þjóðv. GM). Stýrimannaskólinn var settur 1. okt. kl. 10.00 í 74. sinn. Skólastjóri bauð velkomna kenn- ara og nemendur og gaf stutt yfir- lit yfir starfsemi skólans á liðnu skólaári. Aðsókn að skólanum er nú meiri en nokkru sinni fyrr, og verða 11 kennsludeildir með 215 nemendum, þ.e. deild fyrir skip- stjórapróf á varðskipum ríkisins, 1., 2. og 3. bekkur farmannadeild- ar, 1. og 2. bekkur fiskimanna- deildar, 1. bekkur tvískiptur og 2. bekkur fjórskiptur, og minna fiski- mannaprófsdeild. Ennfremur verða tvö námskeið úti á landi fyrir hið minna fiskimannapróf. Kennarar verða tuttugu. Skólastjóri sagði að hin mikla aðsókn að skólanum bæri gleðileg- an vott um góða afkomumöguleika á sjónum. Velferð þjóðfélags okkar hlyti líka að miklu leyti að byggj- ast á því, að aflað væri úr sjónum og kaupskipum okkar haldið úti, á- samt þeim skipum, sem ættu að verja fiskimið okkar. Skipaflotinn væri nú þegar orðinn hinn glæsi- legasti og stöðugt bættust við ný skip. Þá hefði þróunin orðið sú, að sérstaklega hefðu fiskiskipin stækk- að jafnhliða nýrri veiðitækni. Hefði þetta orðið til þess að margir af okkar ágætu aflamönnum, sem að- eins hefðu rétt til skipstjórnar á skipum allt að 120 rúmlestir, hefðu þegar þeim hefur boðist stærra skip til að stjórna, orðið annað- hvort að neita þeim, eða leita á náðir stjórnarvaldanna til þess að fá undanþágu til skipstjórnar. — Hvorttveggja væri illt og hvað undanþágum viðvíki hlytu þær allt- af að verða tímabundnar og ekki til frambúðar. Til þess að reyna að ráða bót á þessu ástandi, var á- kveðið að hafa sérstaka deild við skólann í vetur fyrir þá, sem hafa hið minna fiskimannapróf. Aðsókn að þessari deild er svo mikil, að tvískipta verður henni. í ráði er að samskonar deild verði einnig í skól- anum í vetur, en varla oftar. Skólastjóri lét í Ijós ánægju sína yfir að fyrir nokkru hefði Sjó- mannaskólanum borizt tilkynning um að ákveðin hefðu verið lóða- mörk skólans og þar með hefði fengizt endanleg lausn þessa máls, sem hefði verið beðið eftir allt frá því skólinn tók til starfa í hinu nýja húsnæði fyrir 19 árum. Að lokum brýndi skólastjóri fyr- ir nemendum að nota vel hinn til- tölulega stutta tíma, sem þeim væri ætlaður til náms í skólanum. Jónas Sigu rðsson, skólastj. Sjó- mannaskólans, var skipstjóri á einum hvalbtánum í sumar. Jónas er nú ekki hér í tunnunni á þessari mynd. Er að flytja setningarræðu skólans.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.