Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Side 55

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Side 55
OLiULEIT í NORÐURSJÓ Séð ofan á þilfar borunarskips. Borstengurnar liggja á þil- farinu. Stöng við stöng er skrúfuð saman eftir því sem holan dýpkar. Mikið er nú skrifað í ensk tæknirit um „the new industry," sem þau nefna svo, þ.e. leitina að olíu og gasi í Norðursjónum. Hyggja brezkir skipa- og véla- smiðir sér gott til glóðarinnar um aukna starfsemi, en þeir eiga margir við erfiðleika að stríða sem stendur, vegna sam- keppni utan frá. Borturnar þeir, sem notaðir eru við rannsókn- irnar og vinnslu olíunnar upp úr sjávarbotni, ef til kemur, eru mikil fyrirtæki, og smiðjur á austurströndinni standa þarna bezt að vígi. Af löndum, sem liggja að Norðursjó, varð Bretland fyrst til að gefa út lög, sem helguðu þeim rétt til að hagnýta sjávar- botninn á stórum svæðum kring- um landið. Ekki mun þó full- samið ennþá við nágrannalöndin um þessa „landhelgi," en að sjálfsögðu munu þau hvert fyr- ir sig heimta sitt „landgrunn." Bretar hafa þegar mælt sitt landgrunn og skipt því í fer- hyrnda reiti, 100 míilur hvern. Hafa þessir reitir verið boðnir út á leigu til ákveðins tíma, 5-6 ára gegn leigu, og að manni skilst loforði um að mega dæla úpp olíu síðar, ef hún finnst, gegn ákveðnu gjaldi (royalty) til ríkisins. Og ekki hefir staðið á Þannig lítur neðsti hluti borsins út, nefnist hann borkróna og er gerður úr demant. leyfisbeiðnum. — í skýrslu frá orkumálaráðherranum brezka, sem kom fram á blaðamanna- fundi í London fyrir skömmu, er þess getið, að 31 umsókn hafi komið fram um leyfi til olíuleit- ar í Norðursjó, og að bak við þessar umsóknir standi 61 fyrir- tæki og einstaklingar. — Lýsti orkumálaráðherra því yfir að 22 umsækjendum væri þegar búið að veita borunarleyfi. Er þar um að ræða 400 reiti, samtals um 30.000 fermílur. Sagði ráð- herrann að leyfi þessi væru þeg- ar undirrituð og innsigluð. En hér hafði verið um mikið vanda- mál að ræða, því mörg fyrir- tækin sóttu um sömu reitina, og yfirleitt sérstök svæði mest eft- irsótt. Er þarna bæði um ensk og erlend fyrirtæki að ræða. Og þátttaka frá svo að segja öllum svokölluðum alþjóða-Olíufélög- um. Taldist ráðherranum svo til, að hlutur Breta væri um 30% og Kanada um 10%. Ráðherr- ann lét þess getið, til þess að gefa nokkra hugmynd um kostn- aðarhliðina við þessar tilraunir, þá væri áætlað að áminnstir þátttakendur mundu eyða í til- raunirnar um 80 milljónum sterlingspunda á næstu 6 árum. Mörg þessara félaga hafa þegar gert mælingar á stórum svæðum á Norðursjó, og talið er, að þau bindi miMar vonir um góðan ár- angur af borunum þar. „Ég hefi frétt,“ sagði ráðherrann enn- fremur, ,,að nokkrir borturnar, sem kosta um 2 milljónir sterl- ingspunda, séu þegar í pöntun í Bretlandi, og að fyrirspurnir um ýmsa aðra hluti sem nota þarf, séu í umferð, og mun þetta allt saman veita brezkum iðnaðar- mönnum kærkomna vinnu. Þó er það svæði sem minnst var á, að- eins lítill' hluti af landgrunni okkar, og það sem mestur áhugi er fyrir sem stendur. — Önnur svæði vekja ef til vill áhugasíð- ar. Að minnsta kosti helmingur þeirra svæða sem nú voru leigð, renna aftur til stjórnarinnar eftir 6 ár, og má þá leigja þau aftur.“ Til þess að gefa nokkra hug- mynd um hve umfangsmikið VÍKINGUR 269

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.