Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Page 64

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Page 64
„Þú ert glataði sauðurinn,“ sagði stýrimaður umbúðalaust. „Ég vil ekki hafa þetta,“ sagði skipstjóri æstur. „Hvern- ig voga þeir sér að hegða sér svona? Farðu og sendu þá upp strax." Stýrimaður blýstraði glaðlega og hlýddi, og upp komu fjórir menn, skarlati skrýddir. „Jæja, hvað á öll þessi þvæla að þýða?“ spurði skipstjóri reið- ur. „Hvað viljið þið?“ „Við viljum frelsa þína ve- sælu, syndugu sál,“ sagði Dick í upphafningartón. „Já, og við munum gera það,“ sagði Jói af sannfæringarkrafti. „Það gerum við,“ sögðu hinir tveir fjálglega og lokuðu augun- um. „Það gerum við.“ Skipstjóri, sem ekki vissi, hvernig hann átti að snúast gegn slíku trúarofstæki, snéri sér ókvæða að stýrimanni. „Ef þú gætir séð hana núna,“ hélt Dick áfram í prédikunar- tón, „myndir þú skelfast. Ef þú gætir-------“ „Farið fram í undir eins,“ þrumaði skipstjóri móðgaður. — „Farið, áður en ég sparka ykk- ur þangað!“ „Bezt að láta Sam reyna,“ sagði annar hinna og lét sem hann sæi ekki bræði skipstjór- ans, „tilraunir hans hafa reynst dásamlega blessunarríkar. — Komdu, Sam.“ „Það hefur hvað sinn tíma,“ sagði Sam varfærnislega. „Lát- um okkur fara fram í og sjá, hvað við getum gert fyrir hann, okkar í milli.“ Þeir fóru með tregðu, og Dick leit um öxl, svo ástríkum augum til skipstjóra, að honum lá við köfnun af bræði. „Ég líð þetta ekki!“ sagði hann grimmdai'lega, „ég skal berja það úr þeim.“ „Þú getur það ekki,“ sagði stýrimaður. „Þú getur ekki bar- ið sjómenn sundur og saman nú á tímum. Það eina, sem þú get- ur gert, er að losa þig við þá.“ „Ég kæri mig ekkert um það,“ sagði skipstjóri fúll. „Þeir hafa 278 verið með mér lengi og þeir eru allir góðir sjómenn. Af hverju reyna þeir ekki við þig, mér er spurn?“ „Mig?“ sagði stýrimaður móðg- aður og hissa. „Nú, ég er sjö- undadagsaðventisti! Þeir þurfa ekki að frelsa mig. Það er allt í lagi með mig.“ „Þú ert dálaglegur aðvent- isti, verð ég að segja!“ sagði skipstjóri. „Hef aldrei heyrt það fyrr.“ „Þú berð ekki skyn á svona mál,“ sagði stýrimaður.“ „Það hljóta að vera afar auð- veld trúarbrögð,“ hélt skipstjóri áfram. „Ég er ekki að flíka þeim, ef þú átt við það,“ svaraði hinn með nokkrum þunga. „Ég er einn af þeim, sem heldur vil setja ljós mitt undir mæliker.“ „Ölkolía myndi duga,“ hreytti skipstjóri úr sér. „Og það væri þér líkara, þar að auki.“ „Mennirnir viðurkenna þau að minnsta kosti,“ sagði stýri- maður hlakkandi. „Þeir sitja ekki á bænasamkomu til að biðja fyrjr mér.“ „Ég skal berja þá í plokk- fisk!“ urraði skipstjóri. „Þeir skulu ekki móðga mig!“ „Þetta er allt til góðs,“ sagði hinn. „Þeir meina það vel. Jæja, ég óska þeim góðs árangurs." Með þessum miskunnarlausu orðum .fór hann niður, og skildi við skipstjóra sinn æstan í skapi, gruflandi upp ráð til að venja skipshöfnina aftur á sómasam- lega hegðun og virðingu fyrir yfirboðara sínum. Upp úr sauð þó fyrst í tetím- anum, þegar óþekkt hönd var rétt inn um ljórann, og stærðar fiugrit kom svífandi niður ká- etuna og velti um bollanum. „Þetta er hámark ósvífninn- ar!“ öskraði skipstjóri, fiskaði upp flugritið og fleygði því á gólfið. „Ég skal lesa þessum piltum lexíu, sem þeir gleyma ekki strax, og græða skilding á því að auki. Ég hef tilbúna smá- ráðagerð, sem mér kom allt í einu í hug í kvöld. Komdu upp, Bob.“ Bob hlýddi glottandi, og skip- stjóri tók við stýrinu af Sam og sendi hann eftir hinum hásetun- um. „Hefur þú nokkurntíma vitað mig svíkja loforð mitt, Dick?“ spurði skipstjóri, þegar hinir komu upp. „Aldrei,“ sagði Dick. „Loforð Bowens skipstjóra er betra en eiður annarra," stað- hæfði Jói. „Jæja,“ sagði Bowens skip- stjóri og leit íbygginn til stýri- manns, „ég ætla að leyfa ykkur að iðka sjálfsafneitun í viku,eða svo. Ef þið lifið allir á kexi og vatni, þangað til við komum í höfn, og smakkið ekki annað, þá skal ég ganga í Herinn til ykk- ar.“ „Kex og vatn,“ sagði Dick efablandinn, og klóraði sér í skegginu, sem var nógu strítttil að klóra á móti. „Það væri ekki rétt að hætta heilsu okkar þannig,“ andmælti Jói og hristi höfuðið. „Þarna sérðu,“ sagði skip- stjóri og snéri sér að stýri- manni. „Þeir láta sér annt um mig, meðan það kostar ekki ann- að en kjaftamas og flugrit í teið mitt, en þegar þeir þurfa ofur- lítið að leggja að sér, þá renna þeir á rassinn." „Við höfum ekki neitað þessu,“ sagði Dick gætilega, „en ef við tökum þessu, hvernig getum við þá verið vissir um, að þú komir til okkar?“ „Þið hafið loforð mitt,“ sagði skipstjóri, „og stýrimaðurinn og kokkurinn eru vitni.“ „Auðvitað gengur þú í Herinn fyrir lífstíð," sagði Dick, ennþá all tortrygginn. „Auðvitað." „Þá er þetta útrætt,“ sagði Dick og ljómaði, „er það ekki, piltar?“ „Jú, jú,“ sögðu hinir, en ljóm- uðu ekki áberandi. „Ó, hvílíkur dýrðar dagur!“ sagði gamli maðurinn. „Her- skipahöfn og herskipastjóri! Við VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.