Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1964, Blaðsíða 66
1964 _ /965 1
(jlefaleq jól!
'JatAœlt kcmaHcf/ át!
AKRANES
Verzlunin Brú, sími 74.
Verzlunin Gler og' Málning' h.f.
Verzlunin Lind.
Verzlunin Staðarfell.
Verzlunin Stóllinn h.f.
Viðtækja- og húsgagnaverzlun
Akraness.
Þórður Ásmundsson h.f. Heima-
skagi h.f.
Þvotta- og efnalaugin h.f.
LJÓSKASTARAR
Útvegum frá Norsk Jungner A.S. ljós-
kastara fyrir skip og báta. — Ljós-
kastararnir eru af viðurkenndum gæð-
um og fáanlegir í ýmsum stærðum og
gerðum, fyrir 32, 110 og 220 Volta
spennu. Verð eru mjög hagstæð.
Smith & Norland h.f.
Verkfræðingar — Innflytjendur
Pósthólf 519. — Símar 11320/21.
Nýjar bækur frá Leiftri
Hvikul er konuást eftir Guðrúnu frá Lundi. — Þessi saga Guðrúnar hefur
hvergi birzt áður. Sagan gerist á fyrri hluta þessarar aldar og hefst á því,
er útflytjendur til Ameríku eru að yfirgefa landið. — Sagan lýsir átökum
í íslenzku þjóðlífi, þegar einstakligar og heilar fjölskyldur slitu öll tengsl við
vini og ættingja. Líklega er þetta átakanlegasta tímabilið í sögu íslenzku þjóð-
arinnar. Og Guðrún frá Lundi lýsir því látlaust og snilldarlega.
Heillar mig Spánn eftir Fredrik Wislöff. Spánn er heillandi land. Saga Spánar
er stórbrotin. Spænska þjóðin er glæsileg og tignarleg í fasi. List hennar sér-
stæð, og margt sem vekur athygli ferðamannsins. Höfundurinn kynnir okkur
þetta litríka land, sögu þess, listina og hið ólgandi líf. — Bókin er falleg og
ágætlega skemmtileg.
Fullnuminn Vestanhafs eftir Cyril Scott. Þýðandi Steinunn Briem. Fullnuminn
Vestanhafs er framhald hinnar frægu bókar tónskáldsins og rithöfundarins
Cyril Scott — FULLNUMINN — þar sem hann segir frá kynnum sínum af
dularfullum spekingi. Hér hittast þeir aftur í Bandaríkjunum, og lýsir Scott
á fjörlegan hátt hinni amerísku útgáfu af meistaranum.
Lending með lífið að veði. Skáldsaga eftir J. Castle og Arthur Haily. Þýðandi
Hersteinn Pálsson. Viðburður sá, sem hér er lýst, gerist að nóttu. Stór flug-
vél er þá á leið yfir hinn ókleifa fjallgarð milli Winnipeg og Vancouver. í vél-
inni eru 35 farþegar, en báðir flugmennirnir eiu meðvitundarlausir — höfðu
fengið matareitrun. Með eindæma snarræði bjargar flugfreyjan áhöfn og far-
þegum. — Sagan er byggð á sönnum atburðum.
Bóndinn í Þverárdal. Skáldsaga eftir Unu Þ. Árnadóttur. Una er Skagfirzk
og þetta er fyrsta bók hennar. En Una á til góðra að telja. Faðir hennar og
Elínborg Lárusdóttir eru systrabörn, og hinn þjóðkunni hagyrðingur, séra
Hannes á Ríp, langafi þeirra. — Sigurður Guðmundsson málari og séra Pétur
Guðmundsson í Grímsey voru langömmubræður Unu í móðurætt. — Þetta er
bók, sem vekja mun athygli.
Systurnar, skáldsaga úr Reykjavíkurlífinu eftir Ingibjörgu Jónsdóttur. — Sagan
um systumai’ er ástarsaga, saga um örlög tveggju systra. Leikurinn er ójafn.
Júlía er ekki fríð og komin yfir þrítugt, en Sigrún ung og fögur.
Smáfólk, tíu sögur eftir Guðrúnu Jacobsen. — Þetta er 5. bók Guðrúnar og
tvær síðustu hefur hún sjálf myndskreytt. 1 sögum Guðrúnar Jacobsen skiptist
á létt gamansemi og þung alvara.
Maddaman með kf/rhausinn, eftir Helga Hálfdánarson, er bók, sem mikla at-
hygli mun vekja. Helgi er hlédrægur, en hörkugreindur og glöggur fræðimaður.
Honum þykir illa hafa verið farið með Völuspá, merkasta kvæði á Norðurlöndum
að fornu og nýju. Helgi segir það deginum ljósara, að í öllum útgáfum sé
kvæðið víðs fjarri sinni upphaflegu mynd. Eftir miklar rannsóknir hefur honum
tekizt að leysa mörg þau vandamál, sem öðrum hefur yfirsézt, og setur fram
tilgátu um upphaflega gerð Völuspár.
Stjörnuspáin, eftir R. H. Nylor. — Viltu þekkja sjálfan þig og vita hvað fram-
tíðin ber í skauti sínu? Hefurðu gaman af að kynnast lyndiseinkennum kunn-
ingja þinna og vina? — Stjörnuspáin er bezta fræðigreinin, sem hægt er að
fara eftir, þegar skyggnst er eftir huldum rökum framtíðarinnar og örlögum
manna.
Lífið í kringum okkur, eftir Ingimar Óskarsson. — Ingimar er landskunnur,
bæði af útvarpserindum sínum og greinum í blöðum og tímaritum. I þessari
bók lýsir hann á sinn skemmtilega hátt fjölda mörgum sérkennilegum dýrum,
bæði á sjó og landi. Fjöldi mynda prýða bókina.
Matta-Maja verður fræg. Matta-Maja er líka að komast á leiðarenda. Hún er
orðin kunn dansmær, en braut frægðarinnar er stundum erfiðleikum háð.
Jói og flugbjörgunarsveitin, eftir Öm Klóa.
Sagan af Tuma litla, eftir Mark Twain.
KIM-\bækurnar — Kim og gimsteinahvarfið (10. Kim-bókin) og KIM og brennu-
vargarnir (11. Kim-bókin).
Bob Moran-bækumar — Kjarnorkuleyndarmálið og Smyglaraskipið.
Zorro-bækurnar — ZORRO og dularfulla sverðið og ZORRO berst á báðar
hendur.
Blóðrefur, eftir Karl May.
280
VÍKINGUR