Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1967, Blaðsíða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1967, Blaðsíða 8
MERKILEGUR KJARASAMNINGUR --------- Heimildarmadur Einar Guðmundsson, Hafnarfirði --- Hellyer Bros Limited DORlUR-FISKIMENN. Samningur milli eigendanna og fiskimann- anna með skipinu b/v „Imperialist/1 um lúðuveiðar (við Vestur-Grœnland): Gert er ráð fyrir að fiskileiðangurinn hefjist frá Hafnarfirði á íslandi í kringum 20. júní 1927. Eigendurnir munu gera fiskimönnunum aðvart í tækan tíma, svo að þeir geti verið ferðbúnir til skips í Hafnarfirði á íslandi á tilsettum tíma. Hver fiskimaður verður að vera hraustur á heilsu, laus við smitandi næma sjúkdóma, og yfir- leitt fullkomlega vinnufær. Hver fiskimaður skal hafa með sér nægan fatn- að, sjóklæði, rúmföt og útbúnað allan til ferðar- innar og skal skyldur til að koma um borð með allan útbúnað sinn á tiisettum tíma. Ferðakostn- aður allur til Hafnarfjarðar, þegar fiskimaðurinn fer þar á skip, greiðist af honum sjálfum og er óviðkomandi eigendunum. Eigendurnir ákveða einir hvenær lagt er af stað heimleiðis frá fiskimiðunum, þó má það ekki síður vera en í lok september mánaðar 1927. Ferðin telst enda þegar skipið kemur aftur, annaðhvort til Hafnarfjarðar eða Hull, en hver af þessum höfnum það verður ákveða eigendurnir einir. Eigendurnir ákveða hvort fiskimennirnir verða afskráðir í Hafnarfirði eða í Hull. Fari skip beint til Hull verður fiskimönnunum borgað eftir því sem hér segir: . 1.) £ 3 — þrjú sterlingspund — á viku frá því er skipið kemur til Hull og þar til mennirnir koma til Islands aftur. 2. )' Ennfremur frítt fæði og húsnæði frá því skipið kemur til Hull og þar til fiskimennirnir leggja af stað til Islands aftur. 3. ) Og loks fargjald og fæði frá Hull til Islands. Eigendurnir ráða hvort fiskimennirnir fara frá Hull til Islands á fiskiskipi eða öðru farrými á farþegaskipi. Fiskimönnunum skal skipt í doríuáhafnir, hver doríuáhöfn skal veraeinn doríuformaður og fjórir fiskimenn. Fiskiskipstjórinn hefur fullkominn rétt til þess að senda hvern þann fiskimann heim aftur er reynist lélegur til verka eða við veiðina, eða hefur sýnt óhlýðni, án þess að viðkomandi fiskimaður eigi skaðabótakröfu á eigendurna eða fiskiskip- stjórann þess vegna. Hver fiskimaður skuldbindur sigtilþessoglegg- ur þar við drengskap sinn, að fara ekki um borð í önnur skip, eftir að komið er á fiskimiðin, nema því aðeins að slíkt sé sérstaklega lagt fyrir hann og yfirleitt skuldbindur hver fiskimaður sig til þess, eftir því sem honum frekast er unnt og í hvívetna að hlýða boðum og fyrirmælum fiskiskip- stjórans. Fiskiskipstjórinn ákveður ávallt á hvaða doríu fiskimennirnir vinna á hverjum tíma og hefur hann heimild til að skipta um mennina á doríunum eftir því sem hann telur bezt henta. Skyldu skemmdir á skipinu eða skipsreiki eiga sér stað og veiðarnar hætta af þeim sökum, eða ef aðrar ástæður skyldu gera það að verkum að eigendurnir ákveða að hætta veiðum, eiga fiski- mennirnir enga kröfu á hendur eigendunum út af því allt án tillits til á hvaða tíma veiðitímans þetta er. Borgun til fiskimannanna skal vera 5 % — fimm af hundraði, til hvers þeirra, eða samtals 20% — tuttugu af hundraði, fyrir alla fjóra mennina, reiknað af verðmæti veiðinnar og grundvallað á þriggja mánaða veiðitíma og reiknast þannig: Fyrir afla Allt að 30 tonnum 30 norska aura per kíló af lúðu yfir 30 tonn, allt að 50 t. 40 „ „ „ „ „ „ yfir 50 tonn, allt að 70 t. 50 „ „ „ „ „ „ yfir 70 tonn, allt að 90 t. 60 „ „ „ „ „ „ yfir 90 tonn, allt að 70 „ „ „ „ „ „ Fiskimennirnir fá borgun í ísl. krónum eftir því gengi sem á þeim verður, miðað við norskar krón- ur, þann dag sem fiskileiðangurinn endar. Skyldi svo fara að b/v „Imperialist" yrði ekki Eins og kunnugt er höfSu Hellyer Bros hér um skei'Ö all umsvifamikla starfsemi i HafnarfirÖi. Samningur þessi, sem viö fengum hjá Einari Guömundssyni í Hafnarfiröi, gefur all góöa hugmynd um kjör ís- lenzkra sjómanna á skipum Hellyers og er merkilegt heimildargagn um fortíöina. 120 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.