Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1967, Blaðsíða 15
*
Það var í saumaklúbb að flestar
konurnar reyktu sígarettur. Eftir
fjörugar umræður um óhollustu
sígarettureykinga, var samþykkt
einróma, að þær skyldu allar byrja
að reykja pípu næst þegar þær
mættust í saumaklúbbnum. Þegar
ein frúin skýrði manni sínum frá
samþykktinni, svaraði hann:
„Þetta var bráðsnjöll hugmynd,
elskan mín. Hér eftir heitir það
ekki saumaklúbbur, heldur pípu-
konsert.“
*
Ég fæ seint fullþakkað yður læknir, að
þér björguðuð sjón minni.
*
Auglýsing frá skotfélagi: Gangið
í félagið, Iærið að skjóta og hittið
vini yðar.
*
Þessi þykir víst nokkuð gamaldags.
Móðirin: „Er sem mér sýnist,
Steini minn, að þú sért að leika þér
að tindátunum þínum á sjálfan
helgidaginn, meðan við hlýðum á
útvarpsmessuna ?“
Steini litli: „Ó, það gerir ekkert
til, mamma. í dag læt ég þá alla
vera hjálpræðishermenn!“
*
Fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, sem
víða hafði ferðast, var eitt sinn
spurður að því, hvernig hann vissi
hvenær hann væri staddur í van-
þróuðu landi, eins og það var kall-
að.
„Það er mjög auðvelt," svaraði
hann. „Þegar ég kem til lands þar
sem börnin eru hlýðin og virða for-
eldra sína.“
*
■HnHHMHHHHHHaaD
FRÍ vaktin
*
„Ég hefi létta og góða vinnu
handa þeim, sem er latastur ■ ykk-
ar,“ sagði liðþjálfinn við hóp 12 ný-
liða. 11 réttu upp hendurnar.
„Af hverju réttið þér ekki upp
hendina, nr. 67?“
„Nenni því ekki!“
Gildir það núna!
Gladstone gamli sagði eitt sinn
í ræðu: „Það sem er siðferðilega vit-
laust, getur aldrei orðið rétt frá
pólitísku sjónarmiði.“
*
Tveir Svíar voru að tala saman.
„Af hverju bregður þú fyrir þig
dönsku?“
„Ég geri það ekki, ég er bara að
totta pípuna mína.“
*
Ungur læknir í kaupstað úti á
landi, spurði kunningja sinn hvort
hann hefði nokkuð hlerað hvernig
fólkinu líkaði við hann sem lækni.
„Ég hlustaði á tal tveggjamanna
hérna í gær og þeir hældu þér á
hvert reipi,“ svaraði kunninginn.
„Og hverjir voru það?“ spurði
læknirinm neð áhuga.
„Það voru Símon gamli grafari
og líkkistusmiðurinn hann Jón Jóns-
son!“
*
Það skeði á tízkusýningu Pól-
verjanna í Reykjavík í byrjun júní,
að þegar ein sýningardaman kom
fram í „kokkteilkjól," hallaði frúin
sér að manni sínum og sagði blíð-
lega: „Heyrðu elskan mín, þessi
mundi passa ágætlega í kokkteil-
partíinu okkar á laugardaginn
kemur.“
„Alveg sjálfsagt, vina mín,“ svar-
aði eiginmaðurinn. „Ég skal bjóða
henni í partíið!"
*
Enginn tannlæknir um borS!
VÍKINGUR
127