Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1967, Page 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1967, Page 16
Bátar og formenn í Vestmannaeyjum „Njör3ur“ 15.oo tonn. „Vestri“ 17.oo tonn. ,JSœi:ar“ 22.00 tonn. Smíðaður í Vestmannaeyjum 1919. Smíðaður í Noregi 1917. SmíSaSur í Reykjavík 1935. Einar Steingrímsson, Hall- ormsstað, er fæddur á Akureyri 26. janúar 1903. Foreldrar Stein- grímur Pálsson og Helga Einars- dóttir. Einar byrjaði ungur sjó- mennsku frá Akureyri, var m.a. á „Gesti.“ Síðar er Einar á varð- skipinu Þór. Til Eyja ræðst Ein- ar 1926 á „Þór,“ með Þórði Þórð- arsyni. Formennsku byrjar Ein- ar 1931, þá með „Njörð.“ Var hann með hann 2 vertíðir. Eftir það er hann með „Þrasa“ og loks „Guðrúnu I.“ Eftir það hætti Einar formennsku og réðist til Óskars Gíslasonar á „Garðar“ stýrimaður og síðar „Álsey.“ Eft- ir það flytzt Einar til Reykja- víkur og réðist á togara og var á þeim fram yfir 1960. Oftast sama skipi. Einar var einn af þessum harðduglegu sjómönnum er eng- inn vildi missa. — Aflabrögðin gengu liðlega frá Eyjum. Sigurður Guðjónsson, Fram- nesi, var fæddur að Framnesi Eyjum 3. nóv. 1911. Foreldrar Guðjón Jónsson og Nikolína Guðnadóttir. Með þeim ólst hann upp. Eins og flestir Eyjadrengir hóf Sigurður sjómennsku á unga aldri og stundaði sjóinn upp frá því. Byrjaði hann með Eyjólfi Gíslasyni á „Hansínu," síðar á „Gissuri hvíta.“ 1938byrjarhann formennsku á „Nirði,“ síðar var hann með „Vestra.“ — Hætti þá formennsku og gerðist stýrimaður á „Sjöfn“ og síðar á „Farsæl.“ Sigurður var mikill efnismaður og duglegur sjómað- ur. Einnig var hann harðfrískur íþróttamaður og var glíman hans eftirlæti. En þar náði hann langt, sökum frækni og lipurðar. Endalok Sigurðar urðu að hann drukknaði í höfninni í Eyj- um 6. maí 1955. Sigfús Guðmundsson, Brim- hólabraut 10, er fæddur að Hóla- koti undir A.-Eyjafjöllum 18. júní 1912. Foreldrar Guðmundur Einarsson bóndi þar og konahans Þuríður Vigfúsdóttir. Með þeim ólst hann upp. 16 ára fór Sigfús fyrst til Eyja og hóf sjómennsku á Þór I. með Þórði frá Sléttabóli. Eftir það er hann á „Soffí,“ „Skuld,“ „Tjaldi“ og margar vertíðir á „Ver I.“ Seinna sem vélstjóri og síðar stýrimaður á „Skaftfellingi.“ Formennsku byrjar Sigfús á „Vin,“ með dragnót. Síðar er Sig- fús með „Gulltopp I,“ þá „Is- leif“ og síðar með „ísleif II,“ er hann var keyptur frá Dan- mörku. Var hann óslitið með þann bát, bæði vetur og sumar til 1957, er hann kaupir „Sævar“ VE 19, ásamt fleirum. Hefir hann 128 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.