Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1967, Side 17
1
*
4
ti
„Sleypnir“ U.oo tonn.
Smíðaður í Feneyjuin 1916.
Ölafur Davíðsson, Minnanúpi,
var fæddur að Ósi í Borgarfjarð-
arsýslu 23. des. 1901. Foreldrar
Davíð Ólafsson og kona hans
Einína Sigurðardóttir. 1922 fór
Ólafur til Eyja og réðist á „Ás-
dísi“ til Sigurðar Sverrissonar,
síðar á „Olgu 11“ og áfram á
,„Höfrung.“ 1930 byrjar Ólafur
formennsku á „Helgu,“ síðar með
„örn,“ „Sleipnir“ og loks „Stakk-
árfoss“ allt til 1943, en það ár
andaðist hann, 11. ágúst.
Ólafur stundaði sjóinn bæði
vetur og sumar, var ábyggilegur
formaður og aflamaður góður.
haft formennsku á honum til
þessa dags, að undanskyldri einni
vertíð er hann var með „Gull-
topp II.“
Alla sína sjómannstíð hefir Sig-
fús verið kraftmaður við sjóinn,
stjórnsamur og aflamaður ágæt-
ur í öll veiðarfæri.
„Gunnar Hániundarson“ 17,oo tonn.
Smíð'aður í Noregi 1924.
Guðni Jónsson, Reykjum, var
fæddur að Steinum undir Eyja-
fjöllum 3. janúar 1906. Foreldr-
ar Jón Einarsson og Jóhanna
Magnúsdóttir, búandi þar. Guðni
ólst upp að Steinum unz faðir
hans lézt, en fluttist þá með móð-
ur sinni til Eyja. 16 ára byrjar
hann sjómennsku þaðan. Fljót-
lega er Guðni orðinn vélstjóri og
er það fleiri úthöld, m.a. á „Giss-
uri hvíta.“ 1931 byrjar Guðni
formennsku á „Gunnari Há-
mundarsyni“ og hafði for-
mennsku þar tvær vertíðir 1933.
Eftir það flytur hann til Kefla-
víkur. í Eyjum vildi hann vera
og þar var hann öllum hnútum
kunnugur. Aflabrögðin gengu
honum ágætlega. Honum var því
flutningurinn ekki sársaukalaus.
Eftir að Guðni settist að í Kefla-
vík var hann alltaf vélamaður á
sama báti.
Guðni lézt af slysförum á mót-
orhjóli, er setuliðsbifreið keyrði
á hann 18. október 1957.
Pétur Guðbjörnsson.
„Faxi“ 14.oo tonn.
Smíðaður í Vestmannaeyjum 1919.
Pétur Guðjónsson, Kirkjubæ,
er fæddur að Oddstöðum í Eyjum
12. júlí 1902. Foreldrar Guðjón
Jónsson, bóndi þar og kona hans
Guðlaug Pétursdóttir. — Pétur
byrjaði ungur sjómennsku. 1920
er hann á „Ver“ með Guðmundi
Einarssyni, síðar á „Nansen,“ á-
fram á „Lagarfossi 1“ og
„Heimaey" með Valdimar Bjarna-
syni. Pétur byrjar formennsku á
„Faxa“ 1927, síðar er hann með
„Gideon“ og loks „Hjálpara," er
hann átti sjálfur part í. tJt úr
þessu hætti Pétur formennsku,
en stundaði áfram sjó, lengst af
með frænda sínum, Þorgeiri Jó-
elssyni á „Lunda,“ eða 15 vertíð-
ir.
Pétur hefir verið slyngur
bjarg- og veiðimaður, einhver sá
allra fremsti hér um slóðir. Hann
fer enn út í eyjar. Pétur var með
duglegustu sjómönnum sinnar
tíðar og fórst formennskan vel
úr hendi. Hann er nú starfsmað-
ur í skrifstofum Vestmannaeyja-
kaupstaðar.
VÍKINGUR
129