Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Síða 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Síða 11
Gleymdi Grafreiturinn Endastöð Broadway neðan- jarðarlestarinnar, við 242ra götu. Til hægri handar er van Cort- land skemmtigarðurinn. Rétt við innganginn í garðinn er hið forna sveitasetur van Cortland ættar- innar, nú safn. Framan við húsið hefir verið glæsileg heimreið, með afmörkuð- um grasreitum og tröppum upp að húsinu. Þess sér nú aðeins ó- Ijós merki, en þó eru tröppurnar og trjágöngin til staðar. Sjálft húsið er til sýnis. Þar geta menn fengið nasasjón af því hvernig hollenzku fjölskyldurnar bjuggu í New York. En borgin hét upphaflega New Amsterdam og um tíma New Orange, áður en hún var skírð í höfuðið á hertog- anum af York. Eldhús er í kjallara, þar hanga skotfæri á veggjum, til varnar og veiðar, innbyggður múrsteins- bökunarofn, opið eldstæði. Ýmis áhöld til matargerðar, osta og brauðmót, pylsukvörn, strokkur, eplaskífupanna, upp á hillu, barnspeli úr silfri. Fólkið varð að vera sjálfu sér nóg. Næsta býli var Dyckman bóndabær, þar sem nú er 205ta gata. Annað sveita- setur var þar sem nú er útborgin Yonkers. I kaupstaðinn, að borg- arveggnum, þar sem nú er Wall Street, voru 30 km. Á hæðinni eru stofurnar, þar má sjá skammbyssuna, sem varð Alexander Hamilton að bana. En hann liggur nú við hliðina á Ro- bert Fulton, rétt innan við gömlu kaupstaðarmúrana. — Á stofuborðinu eru tóbaksdósir Stuyvesants og reykjarpípa Washingtons, en hann var þarna tíður gestur, þegar hann stóð í styrjöld við Breta. Við borðið voru rædd hernaðarleyndarmál, margur hraðboðinn kom og fór á sveittum fáki. Þarna var og geymd fjárhirzlan. Þeir höfðu einfalda fjárgeymsluaðferð, níð- þungar járnkistur fullar af silfri, sigu fljótt í ef einhver tók á rás með þær. Uppi á lofti eru svefnherberg- in, þar er rúmið sem Washing- ton svaf í. Gamansaga segir að Washington sé faðir Bandaríkj- anna, af því hann svaf svo víða, er þá farið að skopast að öllum skiltunum: „Hér svaf Washing- ton.“ Á hanabjálkaloftinu eru barna- herbergi og tóvinnustofa. Börnin sváfu í lokrekkjum, sem voru lok- aðar að utanverðu méð lykli, meðal annars vegna þess að í herberginu var opinn eldur. I tó- vinnustofunni sér í sperrurnar, þar eru ekki notaðir naglar, held- ur eru sperrurnar reknar saman með trépinnum. Bak við húsið er lítill krydd- jurtagarður. Utihurðir eru tví- skiptar hollenzkar og eru læsing- ar hafðar það hátt að börn næðu ekki að opna. Ofan við húsið er sléttur völlur um 3 km á breidd og U/2 km. á lengd. Vatn skiptir landareign- inni og austan við það er golf- völlur. Norðan við flötinn er skógivax- in hæð. Þar eiga ekki margir leið um, þó eru þarna troðnar götur. Þegar ég átti leið þarna um, tróð ég 10 dala seðli í tána á sokknum mínum, til þess að eiga fyrir strætó, ef einhver Portó-ríkaninn héldi að ég væri sparibaukurinn hans. Uppi á hæðinni, hulinn skógi og þakinn villigróðri er stór graf- reitur, með skrautlegu járnhliði. Girðingin hefur verið rofin á ein- um stað og einhver unglinga- flokkurinn hefir greinilega hald- ið pylsu- og bjórsamkvæmi inni í reitnum. Legsteinum hefir verið velt um koll, og er allt umhverfið í hinni mestu óhirðu. Skjaldarmerki, með mylluvængjum, er á hliðinu, og neðan við hliðgrindina má lesa að hér sé grafreitur van Cortlands- ættarinnar. Hér hefir einhvern- tímann verið haldin virðulegri at- höfn, en sú er nú sér merki. Cortlandarnir hafa ekki búist við því að þeir yrðu svona for- sómaðir, eftir að hafa gefið land sitt undir skemmtigarð. En þetta heyrir fortíðinni til, eins og Val- týr Pétursson segir um Metro- politian safnið. — Á öld múg- mennskunnar verður bráðum far- ið að grafa menn í bylgjupappa. Þormóður Hjörvar. VÍKINGUR 145

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.