Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Blaðsíða 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Blaðsíða 25
» t I þessu stavfi úti. Þá eru það mörg félagasamtök sem finna hvöt hjá sér til að styrkja þetta með ýmsu móti. Eru kvenfélög og sauma- klúbbar hinar mikilvægustu stoð- ir í þessu, bæði hvað bein fjár- framlög og jólapakka snertir. Meira að segja sé ég í blaði norska sjómannatrúboðsins „Bud og Hilsen,“ sem ég hefi fyrir framan mig að nemendur hús- mæðraskólanna eru einnig farnar að útbúa jólapakka, sem svo eru sendir til sjómannaheimilanna til úthlutunar. Að framansögðu sézt að Islend- ingar þurfa að bæta um. Það þurfa að rísa upp mikið fleiri sjó- mannastofur og þær eiga að vera reknar á Kristilegum grundveili, það sjáum við af reynslu annarra þjóða. Þar á að gæta fyllstu reglusemi og siðgæðis, í beinni andstöðu við drykkjukrárnar. Þar eiga sjómenn að geta verið óhult- ir fyrir hinum skaðlegu áhrifum og freistingum Bakkusar, en not- ið hollra veitinga, lesið góðar bækur eða blöð, skrifað til vina sinna o.s.frv. Einnig er þeimveitt margvísleg þjónusta og fyrir- greiðsla, t.d. með síma, póst og peninga o.fl. Þá er þeim að sjálf- sögðu gefið tækifæri til að vera á kristilegum samkomum, en það eitt getur haft ómetanlega þýð- ingu. Hefi ég þar fyrir mér mína persónulegu reynslu og margra annarra. Á einni slíkri sjómanna- samkomu sem haldin var fyrir 35 árum síðan á norska sjómanna- heimilinu, sem þá var starfrækt á Siglufirði, urðu hin mestu straumhvörf í lífi mínu. Þá mætti ég Jesú Kristi sem mínum per- sónulega Frelsara, og hann frels- aði mig frá glötununni og leysti mig undan ofurvaldi áfengis og tóbaks og margra annarra synd- samlegra nautna. Þessvegna vil ég segja við hvern, sem er bundinn af eiturnautnunum. Jesús getur leyst þig, ef þú kemur til hans. Þetta gat ekki gerzt fyrir minn eigin kraft, en aðeins fyrir hans frelsandi mátt. Jesús er kominn „til að leita að hinu týnda og frelsa það.“ Jóh 1 :12. VÍKINGUR Þá skal með nokkrum orðum vikið að Salem sjómannastarfinu. Við höfum ekki sjómannastofu hér, en ég trúi því að það sem gert er, verði undanfari þess að hér eigi eftir að rísa af grunni veglegt sjómannaheimili, fyrir Guðs hjálp, og þeirra manna sem hann kallar til þess. Við höfum aðeins fremur lítinn samkomusal, en þangað hafa þó æðimargir sjó- menn lagt leið sína, bæði á sam- komur, og svo er þeim hefir verið sérstaklega boðið á stórhátíðum, eða eftir því sem tækifæri hafa verið til, og menn hafa lengi ver- ið fjarri heimilum sínum. Eru þá bornar fram ókeypis veitingar, lesið Guðs orð, sungið og ræðst við. Hafa það ávallt verið bless- aðar samverustundir, sem margir munu eiga góðar minningar frá. Með desember er farið að láta jólapakka um borð í þau skip, sem næst til og vitað er um að verða fjarri heimahöfn um jólin. Á aðfangadag er farið á sjúkra- húsið með pakka til þeirra sjó- manna, sem þar eru, en á síðast- liðnu ári var vitjað þangað svo oft, sem hægt var 70 sjómanna og þeim lánuð blöð og bækur og ýmislegt fleira fyrir þá gert. Á jóladagskvöldið er svo öllum þeim sjómönnum boðið, sem ekki eiga heimili hér í bænum. Um s.l. jól var hér margt manna, og sannarleg hátíðargleði með öllum. Utbýtt var alls 195 jólapökkum til íslenzkra sjómanna og 180 til erlendra. Þess skal getið að frá danska sjómannatrúboðinu barst efni í 80 pakka, einnig sendu nokkrar ungar sænskar stúlkur efni í marga pakka. Þá hafa verzlanir hér sýnt þessu fórnfýsi. Þessum aðilum, og öllum öðrum, sem á einn eða annan hátt hafa sýnt þessu starfi vinarhug og góðan skilning, vil ég þakka sér- staklega og biðja Guð að launa þeim bænir þeirra og kærleika. Til íslenzkra kvenna vil ég segja þetta: Ef þið finnið hvöt hjá ykkur til að útbúa eitthvað til að gleðja þá sjómenn, sem ekki eiga þess kost að dvelja heima með ástvinum sínum um jólin, þá er mér ljúft að greiða fyrir því, að það nái til þeirra. Sendið það svo fljótt sem verða má. Undir- búningur að þessu er oft hafinn strax að sumrinu, enda getur ver- ið erfitt að fá mikið í hendur rétt fyrir jól. Fylgt hefir verið þeirri reglu að heimsækja hvert skip sem náðst hefir til a.m.k. einu sinni á ári, og gefa þá um borð Kristileg blöð og rit. Yfirleitt má segja að því hafi verið tekið vel meðal sjó- manna, þegar Guðs orði hefir ver- ið útbýtt á meðal þeirra, eða stutt guðræknisstund höfð um borð. Um það bera vitni góðar viðtökur um borð í skipunum og mikill fjöldi þakkarbréfa og skeyta frá innlendum og erlendum sjómönn- um, eða aðstandendum þeirra. Það er bæn vor, að þeir megi ávallt hafa Guðs orð sem „leiðar- stein í stafni“ og taki af hjarta undir með skáldinu sem kvað þannig: Og stundum sigli ég blíðan byr. Og bræðra samfylgd þá hlýt ég. Og kjölfars hinna, er fóru fyr. Án fyrirhafnar þá nýt ég. í sólarljósi er særinn fríður. Og sérhver dagurinn óðar líður. Er siglt er fyrir fullum byr. En stundum aftur ég aleinn má. í ofsarokinu berjast. Þá skellur niðadimm nóttin á. Svo naumast hægt er að verjast. Ég greini ’ei vitanélandiðlengur. En ljúfur Jesús á öldum gengur. Um borð til mín í tæka tíð. Mitt skip er lítið, en lögur stór. Og leynir þúsundum skerja. En granda skal hvorki sker né sjór. Því skipi ’er Jesús má verja. Hans vald er sama sem var það áður. Því valdi ’er særinn og stormur háður. Hann býður: „Verði blíðalogn." Að lokum skal það tekið fram til að fyrirbyggja misskilning, að þetta starf hér er algjör sjálf- boðaþjónusta, sem unnin er, jafn- hliða þeim störfum sem hinn Frh. n bls. 160 159

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.