Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Page 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Page 16
ooooooooooooooooooooooooooooooooooooo Oft hafa niikil eldgos orcViiV í löndunmn vicV MicVjarðarliaf. Vísiiidanienn eru nú acV störfuin þarna og eru iniklar líkur á a<V Ijósi vercVi varpaó á frásögu Platons uni liió Iiorfna Atlantis, en vísindaniennirnir liafa fimdicV horg, sein sokkicV liefur í sæ fyrir 3S00 árum. VarcV atlnircVurimi vegna eldgoss. ooooooooooooooooooooooooooooooooooooo Enn er sagan um Atlantis til umræðu. Þessi margumtalaða eyja, þar sem háþróað þjóðfélag ríkti, bæði menningarlega og efnahagslega, hvarf skyndilega á einum sólar- hring. Fjöldi manna lét þar líf sitt og menning leið undir lok. Aftur og aftur hafa menn á ýmsum tímum velt þessu fyrir sér, hvar eða hvort þetta hefur átt sér stað. Vísindalegar rann- sóknir skoðað málið, en endalokin þó þau sömu, að getgáturnar séu óraunhæfar. Samt íhuga menn enn frásögnina um þetta merki- lega hástemmda land. Gríski heimspekingurinn Platon var fyrstur, sem talaði um At- lantis opinberlega. Það var árið 150 355 f. Krist. Upplýsingarnar fékk Platon hjá ættingja sínum, sem var í nánum tengslum við stjórn- málamanninn Solon, er stjórnaði 600—560 f. Kr. En Solon hafði aftur heyrt egypzka hofgoðaræða saman um Atlantis. Samkvæmt því er talið að land þetta, sem var mjög stór eyja, hafi sokkið til botns 1100 árum fyrir upphaf okkar tímatals. Platon lýsir sögu Atlantis í tveimur heimspekilegum samræð- um, Timaios og Kritias. En það kom oft fyrir, þegar Platon vann að slíkum verkum, að hann bjó til „staðreyndir" til að renna stoðum undir röksemdir sínar. Ekki er að furða þótt fleiri séu á þeirri skoðun, að sagan um At- lantis sé hrein þjóðsaga. Veiga- mikil rök fyrir því eru iíka talin þau, að enginn annar forn höf- undur nema Platon minnist á þessa merku eyju. En þrátt fyrir þetta eru þó margir fullvissir um, að eyjan hafi verið til og sagan um hana sé sönn. Þúsundir bóka og blaða- greina hafa verið skrifaðar um fyrirbærið, en mikill meirihluti þessa hefur verið ritaður af leik- mönnum og sérvitringum. En fyrir örfáum mánuðum fór kippur um heim vísindamanna. Hópur mikilsmetinna vísinda- manna tilkynnti um nýfundinn fornleifafund á botni Miðjarðar- hafsins austanverðu, og gæti sá fornleifafundur ef til vill lyft hul- unni af hinni fjörgömlu tilgátu um Atlantis. Fyrir næstum 3500 árum áttu VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.