Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Síða 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Síða 19
„Helga Guðrmindsdóttir*6 keimir liI PatreksfjarÓar, heiniahafnar sinnar. Vélskóli Islands í Vesimannaeyjum. Á síðastliðnum vetri starfrækti Vélskóli íslands skóladeild í Vest- mannaeyjum, námskeið 1. stigs vélstjóra, sem veitir réttindi til meðferðar allt að 500 ha. véla. Forstöðumaður þess var undir- ritaður, en kennarar í ýmsum greinum fengnir í Eyjunum. Áður hafði það verið föst venja að Fiskifélag Islands starfrækti þar hliðstæð námskeið annað hvert ár, og var þá notast við vélakost gömlu rafstöðvarinnar, sem leyst hafði verið af hólmi á myndarlegan hátt. Aðstaða þessi var þó mjög ófullkomin, og þegar Vélskóli Islands samkvæmt nýj- um lögum tók við af Fiskifélag- inu, var í samráði við bæjar- stjórnina í Vestm.eyjum ákveðið að gera allverulegar breytingar á Iiúsnæðinu, sem henta mætti kröf- um nýrra tíma. Breyting þessi var all-umfangs- mikil og kostnaðarsöm, og stóð bæjarfélagið undir kostnaðinum, VÍKINGUR en Vélskólinn lagði til kennslu- vélakost, ásamt kennslukröftum og reksturskostnaði. Og svo vel tókst til, að samvinna þessi var ávallt hin bezta, og nú er í Vest- mannaeyjum vel á veg komin framtíðarstaða fyrir vélskóla þar. Nemendur skóladeildarinnar voru í vetur 23, og unnu þeir að uppsetningu kennsluvélanna, og hlutu því, og svo síðan, er þær voru komnar í notkun, verklega æfingu og þekkingu, sem er nauð- synleg undirstaða í starfi þeirra. Bókleg kennsla fór fram í húsa- kynnum Iðnskólans, sem er nýtt hús og vel búið til kennslu, og verður að segja að það fyrir- komulag var báðurn skólunum hagkvæmt, en vissulega naut Vél- skólinn þar, sem reyndar annars- staðar, velvilja forráðamanna og skólastjóra. Engin goðgá er að halda að Vélskóli eigi framtíð fyrir sér í Vestmannaeyjum, og má þar t.d. benda á fordæmi Stýrimanna- skólans, en reynsla næstu ára verður að skera úr um, hvort ár- lega fáist nægilega margir nem- endur. í lögum um Vélskóla íslands ei’ sagt að námskeið (o'A nián.) 1. stigs vélstjóra skuli haldin utan Reykjavíkur, þar sem aðstaða er fyrir hendi og nægilega margir nemendur fáist. Enginn neitar því nú, að þessi aðstaða er nú með bezta móti í Vestmannaeyjum. Mér þykir því rétt að benda þeim ungu mönnum sem á vélstjóra- starf hyggja, að venjulega er skólahald Vélskóla Islands aug- lýst í júlí—ágúst á sumrin, og verður þá að senda umsóknir fyr- ir tilsettan tíma, ef þær umsókn- ir verða ekki nægilega margar, verða námskeiðin ekki haldin og tilgangslítið að reyna að breyta þar nokkru um. Dragið því ekki fram yfir síðustu stund að senda umsókn um skólavist. Einnig er ekki úr vegi að bendá mönnum á það, að eftir próf á námskeiði 1. stigs fá þeir rétt til meðferðar véla sem yfirvélstjór- ar allt að 500 hestöflum, og auk þess, ef vissum kröfum um eink- unnir er fullnægt, rétt til að halda áfram námi við Vélskólann, allt til enda, (4. stigs), sem veitir réttindi til vélstjórnar á stærstu skipum. Um það hvort 2. stigs skóladeild verður haldin í Vest- mannaeyjum á næstunni, geta livoi'ki ég né aðrir sagt, en verði næg aðsókn að 1. stigs deildinni og árviss, þá eru einnig skilyrði fyrir hendi til að auka vélakost svo að nægi til framhaldskennslu, og er ég viss um að skólayfir- völd mundu ekki leggjast gegn því, enda væri þessi þróun hin eðlilegasta, og stærstu verstöð landsins verður ekki með neinni sanngirni synjað um menntun sjómanna sinna. En sem sagt — nánasta framhald veltur á fjölda þeirra nemenda, sem sækja um skólavist á tilsettum tíma. Jón Einarsson vélstjóri. 153

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.