Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Page 34
500 flóð úr fljótunum valdið
skemmdum, og í 60 ár frá 1881
til 1940 urðu af völdum sjávarins
550 flóðskaðar og stórskemmdir,
og ekki má gleyma Elisabetar-
flóðinu svonefnda 1421. Þá hurfu
72 bæir og um 50.000 mann fór-
ust.
Þegar Zuidersee varð til árið
1958, drukknuðu 2.000 manns og
3.000 ferkílómetrar fóru undir
vatn, og við lá að allt Vestur-
Holland yrði hafinu að bráð. —
Afsluitdijk-varnargarðurinn í
Zuidersee er 32 km langur, 100
metra breiður og 6 metra hár yfir
sjávarmál og nær nú alla leið yfir
Zuiderzee.
Á þennan geysistóra varnar-
vegg (dijk) sem tók 10 ár að
byggja, eru skrifuð þessi orð: ,,Sú
þjóð sem vill lifa, verður að
byggja upp framtíð sína.“ Hol-
lendingar hafa alltaf orðið að
verjast flóðum í fljótunum í vor-
leysingunum með vatnajafnvægis-
lokum og ágangi hafsins með
traustum varnarveggjum. — Um
þetta stríð kunna þeir margar
dáðríkar sögur.
Landið er lágt, og hæsti punkt-
ur þess aðeins 1.000 fet yfir
sjávarborð, um 9000 vindmillur
pumpa og dæla dag og nótt millj-
ónum lítra yfir varnargarðana,
og úr sýkjum Polders, sem taldir
eru 2.800 talsins. Brýrnar í Am-
sterdam einni eru 800 að tölu.
Innhafið Ijesselmeer er nú í
þurrkun og hliðarsjóirnir talið
frá Amsterdam Ij.meer, Veluwe-
meer, Ketelmeer og í Zeelenzku
þríhyrnunni Nip rís nýtt land úr
örmum hafsins, og í komandi
framtíð bindast Frislenskueyj-
arnar meginlandinu og innan
þeirra skapast þá nýtt land o. s.
frv.
Hollendingar segja með stolti,
,,Guð skapaði veröldina, en við
höfum skapað Holland," og er
margt satt í því.
Schiphol, þar sem flugvöilur
þeirra er við Amsterdam, var eitt
sinn höfn. Nafnið þýðir skipahol-
an, því þar var sjóorusta í 80 ára
stríðinu og þar sukku fjöldi hol-
lenska og spanskra skipa og dreg-
ur staðurinn nafn sitt af því.
Síðasti stóri innsjórinn, sem
þurrkaður var á undan framan-
töldu, var Harlemmeer 1852, þar
sem nú er Schipphold-flugvöllur-
inn.
Gamla Holland telur 22 borgir,
sem margar hafa lítið breytzt í
gegnum aldirnar, og þær eru
stoltar af sínum gömlu könulum,
sýkjum, lyftubrúm og renisans-
ráðhúsum, turnum og borgarhlið-
um, líkt og æfintýraborgirnar í
barnasögunum. Þær lifa á sinni
fornu frægð og menningu, aðrar
hafa vaxið upp í stórstaði og enn
aðrar byggjast upp á undra
skömmum tíma af fallegum, ný-
tízkulegum stórhýsum og hafa líf-
legt viðskipalíf og markaði, með
önnum kafnar hafnir blómstrandi
verzlunar- og viðskipalíf.
I Hollandi búa nú um 12 millj-
ónir manna eða um 350 til 400
manneskjur á hvern ferkílómetra
að meðaltali, en í vesturhluta
landsins eru þeir nokkur þúsund
á ferkílómetrann, og þó 8%
landsins séu skóglendi og yfir
20% þess undir vatni, þá er þar
rekinn mikill landbúnaður.
Þéttbýlið hefur að sjálfsögðu
eytt dýralífi og fjöldi dýra og
fugla hafa flúið hávaðann og
menninguna, en þó finnast þar
villt dýr eins og hirtir, dádýr,
merðir, greifingjar og villisvín í
skógunum við Limburg.
Fuglalífið er einnig fjölskrúð-
ugt og víða talsvert mikið, til
dæmis við Haterse Vennen,
Swanenwater Ilperveld og sand-
heiðarnar Kennemdúinen, Oost-
Voorme skógunum, Schoorl, Fri-
ese-Wouden skógunum, Spanders-
woud og Gelderse, Akterhock og
lyngheiðarnar Gooise Hei við
Bussum með sínum fögru skógum
og smásjóum, og víðar og víðar.
Já, þó landið sé þéttbýlt, þá á það
enn sína náttúrufegurð víða ó-
spillta og fagra.
Stærsti þjóðgarður Hollands í
hjarta landsins, De Hooge Wel-
uve, er um 66 ferkílómetrar að
stærð með skóg og heiðalöndum.
Hann er nálægt Arhem, og þar er
líka staðsett eitt frægasta safn
landsins, Kröller Muller safnið
við Otterlo, en það er eitt bezta
safn Van Gogh-málverka, sem nú
er til í heiminum. Söfn Hollend-
inga eru mikil og mjög merkileg
og komum við að því síðar.
Að vorinu og sumrinu og fram
á haust er Holland blómum
skrýtt, sannkallað blómaland,
miðað við stærð er það mesta
blómaland veraldarinnar. Þar eru
ræktaðar aliar tegundir blóma.
Þar eru tulipana- og jasiníuakrar
í þúsund hektara vís, tala vermi-
húsa er legio. Gul narsissia og
narcissia í óteljandi litum eru
ræktaðar í þúsundum hektara,
lysti- og almenningsgarðar eru ó-
teljandi, og einnig eru í hverjum
húsagarði safn fegurstu blóma.
Við vegkantinn og á þjóðvegum
eru seldir blómahringir til skreyt-
ingar á bifreiðum, úr gulum og
hvítum skrautblómum. Einn feg-
ursti lystigarðurinn er Keukenhof
við Lisse, milli Leiden og Har-
lem, 65 ekrur með 700 tegundir
túlipana. Hann opnar snemma á
vorin. Þar má einnig sjá meðal
annars rauðleit blómstur epla-
trjánna, peru-, cherry- og plómu-
tré og óuppteljandi fjölbreyti-
leika yndislegustu blóma. Blóma-
markaðir eru haldnir í flestöllum
borgum landsins, t.d. daglega í
Aalsmeer, rétt hjá Amsterdam.
Þar eru blóm seld í milljónatali
dag hvern, og líka í Bekel og
Rodenrijs rétt hjá Rotterdam,
Beverwijk í Norður-Hollandi,
Groningen, Honselersdijk í Suð-
ur-Hollandi og óteljandi öðrum
stöðum um landið. — Ekki má
gleyma Amercfoort-garðinum í
Amsterdam, Arnhem-garðinum
(Open Air Museum), Blomen-
dal-garðinum, Thijsses Hof,
Bennebroek, hitabeltisblóm og tré
í Linnaeus Hof, The Hague, rósa-
garðinum við Westbroeke Park,
listigarðinum í Hilversum með
350 tegundum af furu, lystigarð-
inum í Leiden, Utrecht ogWagen-
ingen, tilraunastöð Garðyrkju-
skólans, allt eru þetta ógleyman-
legir staðir.
Rotterdam er önnur fjölmenn-
VÍKINGUR
168