Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Page 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Page 8
Ingólfur Stefánsson: F.F.S.Í. enn sniögengid á fjárlögum í frumvarpi til fjárlaga, marsútgáfu 1980, má lesa eft- irfarandi: Félagsdómur .................................. 6 482 Samtök vinnumarkaðarins vegna hagræðingar- starfsemi ................................... 50 000 Bygging orlofsheimila verkalýðssamtakanna ... 80 000 Alþýðusamband íslands vegna Menningar- og fræðslusambands alþýðu ....................... 30 000 Félagsmálaskóli alþýðu ...................... 40 000 Hagdeildir Alþýðusambands íslands, Vinnuveit- endasambands íslands, Vinnumálasambands samvinnufélaganna, BSRB og BHM .............. 40 000 Iðnnemasamband íslands ................... 900 Ríkisábyrgð á launum vegna gjaldþrota ....... 40 000 Alþýðusamband fslands vegna orlofsmála.... 8 000 Alþýðusamband íslands vegna norræna verka- lýðsskólans í Genf .......................... 14 000 Námskeið fyrir trúnaðarmenn á vinnustöðum . 1 400 Fræðslumál BSRB, BHM og samtaka sjómanna 9 400 Gjöld samtals ................................ 320 182 Ekki held ég að þau samtök sem hér eru talin verði ofalin af þessum framlögum. En við hjá FFSÍ teljum að ekki sé síður nauðsyn að sambandi okkar sé veitt ríkulega til fé- lagsstarfsemi. Það er mitt álit að sjómenn hafi mikla sérstöðu í ýmsum málum og stjórnvöldum sé skylt að taka tillit til hennar og gera sjómönnum þannig kleift að taka þátt í félagsmálastörf- um frekar en nú er. Starfsemi FFSÍ út á við er sáralítil. Það hefur ekki haft bolmagn til hennar, t.d. að fylgjast með námskeiðum og ráðstefnum erlendis um vel- ferð sjómanna. í því frumvarpi sem nú liggur fyrir er hvergi minnst á FFSÍ, en á einum stað er minnst á BSRB, BHM og samtök sjómanna. Ekkert liggur fyrir um það að hluti þess fjár sem þarna er minnst á skuli renna til FFSÍ. Á Norðurlöndunum hafa málefni sjóman-aD verið mjög mikið til umræðu síðustu árin, og er það að vonum því að þjóðirnar þar eiga mikið undir siglingum. Hérlendis er þagað þunnu hljóði um þessi mál. Skellt er skollaeyrum við til- lögum þeim sem FFSÍ hefur borið fram um velferðarmál sjómanna. Allir íslendingar ættu að vita á hverju tilvera þessarar litlu þjóðar byggist. En ef ein- hver veit það ekki, þá mætti nefna honum sjósókn, fisk- veiðar og siglingar. Þegar svo illa tókst til hér fyrr á öldum að siglingar lögðust niður og sjómennska var ekki í heiðri höfð, glataði þjóðin sjálfstæði sínu. Ég vænti þess að sú ríkis- stjórn sem nú situr við völd geri sér grein fyrir mikilvægi þess að aðbúnaður sjómanna verði með þeim hætti að ekki þurfi að óttast um líkamlega, félagslega eða andlega heilsu þeirra. /------------------------------ Ingólfur Stefánsson: Leitaö langt yfir skammt Á síðustu árum hafa ráð- herrar tekið sér aðstoðarmenn til að annast ýmsa þætti starfs síns eða vera sér til ráðgjafar. Meðal annarra hefur sjávar- útvegsráðherra gert þetta. Ekki hefur það gerst að þeir ágætu menn sem gegnt hafa embætti sjávarútvegsráðherra hafi kvatt sér til ráðuneytis menn úr atvinnugreininni, t.d. reynda skipstjóra, heldur hafa þeir valið þann kostinn að velja til þessa starfs menn úr öðrum stéttum, og er það merkilegt út af fyrir sig. í sjávarútvegsráðuneytinu hefur starfað um árabil gagn- menntaður skipstjóri, með mikla og farsæla sjósókn að baki, og mætti ætla að reynsla hans í málefnum fiskveiða hefði getað orðið umræddum ráðherrum mikil stoð í starfi. Ég held að nauðsynelgt sé fyrir sjávarútvegsráðherrana að taka upp önnur og farsælli vinnubrögð í vali á aðstoðar- mönnum. 8 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.