Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Page 9
Við leggjum áherslu á
félagslegar umbætur
r r
Rætt við Oskar Vigfússon, formann Sjómannasambands Islands,
um kjarakröfur sjómanna
Víkingur: Hvernig er háttað nú
undirbúningi að samningagerð að
hálfu Sjómannasambands íslands
og aðildarfélaga þess?
Óskar: Þessi undirbúningurerá
lokastigi. Að undanförnu hef ég
að sjálfsögðu kynnt mér skoðanir
félaga innan SSÍ, hver vilji manna
væri í sambandi við kröfugerðina.
Það er nokkuð ljóst að almennt
er það vilji manna að þessu sinni
að frekar séu gerðar kröfur um
ýmsar félagslegar umbætur held-
ur en beinar krónutöluhækkanir,
t.a.m. í formi hækkaðrar skipta-
prósentu. Að mínum dómi verður
megininntakið í okkar kröfum
þetta:
Efst á blaði verður krafa um
lagfæringu á iðgjaldagreiðslum
viðsemjenda okkar í lífeyrissjóð
bátasjómanna. Eins og margir vita
þá er þetta mál í megnustu óreiðu
að því er varðar fjárhagslegt
öryggisleysi að starfsævi lokinni.
Iðgjaldagreiðslurnar eru svo lág-
ar, að menn sem hættir eru störf-
um á sjónum bera lítið úr býtum
úr lífeyrissjóðum.
Framarlega setjum við líka
kröfuna um frítt fæði. Þessa kröfu
höfum við reyndar lengi haft uppi
í samningagerð, en hún hefur ekki
náð fram að ganga að öðru leyti
en því að fyrir alllöngu fengust
greiðslur úr áhafnadeild afla-
tryggingasjóðs upp í fæðiskostn-
að.
í kröfum okkar verður einnig
lagt mikið upp úr því að menn geti
notið aukinna fría, t.d. að helgar-
frí verði á netabátum allt árið, en
ekki frá 1. apríl eins og nú er.
Margar greinar í kjarasamn-
ingnum þarf að gera skýrari,
þannig að þær kveði ótvírætt á um
réttindi sjómanna. Því miður er
það svo nú að túlkun okkar á
ýmsum greinum hefur ekki farið
saman við skilning LÍÚ. Þetta
hefur í ýmsum tilvikum valdið
miklum sárindum, og mætti í
þessu sambandi nefna ákvæði
varðandi veikindafrí og slysabæt-
ur.
Við munum knýja á um breyt-
ingará 18. grein sjómannalaganna
og höfum í samráði við FFSÍ gert
um þær tillögu, sem felur það í sér
að sjómenn njóti fyllri réttinda til
samræmis við rétt verkafólks í
landi. Þessi 18. grein er nú orðuð
svo að útgerðarmenn hafa getað
afskráð menn af skipum án þess
að til kæntu ráðningarslit.
Víkingur: Þess er sem sé að
vænta að aðildarfélög SSÍ — að
Vestfirðingum undanskildum —
standi sameiginlega að kröfugerð,
sem fyrst og fremst verður grund-
völluð að félagslegum réttarbót-
um?
Óskar: Já.
Víkingur: Að hvaða leyti eru
kröfur Alþýðusambands Vest-
fjarða hliðstæðar kröfum annarra
sjómanna og að hvaða leyti helst
frábrugðnar?
Óskar: Þær eru í höfuðatriðum
á annan hátt uppbyggðar. Við
leggjum aðaláherslu á auknar,
félagslegar réttarbætur, en Vest-
firðingarnir á kaupliðina — að
mínu mati. Ég vil þó taka það
skýrt fram að ég tel að full rök séu
fyrir öllum þeirra kröfum. Ýmis-
legt af því sem þeir gera nú kröfur
um er þegar fyrir hendi í öðrum
sjómannasamningum. Að því er
varðar aukna frídaga ganga hvor-
ar tveggju kröfurnar í sömu átt.
Eins sakna ég í kröfum þeirra
Vestfirðinganna. Engin ákvæði
eru nú í sjómannasamningum um
kaupgreiðslur til sjómanna á tog-
skipum þegar þau hætta veiðum
VÍKINGUR
9