Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Page 10
af öðrum ástæðum en vegna veð-
urs. I samningum er ákvæði um að
þegar 14 dagar eru liðnir af stoppi,
skuli skipverjar fara á kauptrygg-
ingu. Þetta á þó ekki við um skut-
togara að okkar mati, þar sem
hver einstök veiðiferð er kaup-
tryggingartímabil. Þess vegna
hefur SSÍ krafist þess að á slíkum
skipum skuli . útgerðin greiða
skipverjum kauptryggingu þegar
skip stöðvast, en útgerðarmenn
hafa í slíkum tilvikum afskráð
menn.
Eitt er það sem félagar okkar
fyrir vestan hafa sett ofarlega á
blað, að mönnum skuli greitt fyrri
vinnu í samningsbundnum svefn-
tíma þeirra. Sannarlega vil ég taka
undir þessa kröfu, en með þeim
fyrirvara að ég skil vökulögin svo
að þau eigi jafnt við um minni
togara sem stærri. Því hef ég talið
það beinlínis hættulegt fyrir sjó-
menn að ætla sér ákvæði í samn-
ingi sem brýtur í bága við lög.
Víkingur: Hvaða áhrif heldur
þú að kjaradeilan á Vestfjörðum
og verkfallið á ísafirði hafi á gang
mála í öðrum félögum sjómanna?
Óskar: Ég vona að kröfur okkar
ágætu félaga fyrir vestan leiði ekki
til þess að kröfur sjómannastétt-
arinnar um auknar félagslegar
umbætur hljóti ekki hljómgrunn
hjá öllum almenningi, vegna þess
málflutnings sem uppi hefur verið
hafður af talsmönnum útgerðar-
manna og þó einkum formanns
LÍÚ.
FTH
*
Stöðvarstjóri á Indlandi hafði
fengið ströng fyrirmæli um að
taka sér ekkert óvenjulegt fyrir
hendur án beinnar skipunar frá
yfirboðara sínum. Þessvegna
sendi hann eftirfarandi símskeyti:
„Skrifstofa Járnbrautanna,
Kalkútta: Tígrisdýr á stöðvarpalli
etandi lestarstjóra. Sendið fyrir-
skipanir."
Sjómenn — Útgerðarmenn
Umboðsmenn um land allt
BRUNABÓTAFÉLAGÍSLANDS
Sími 26055 (3 línur) - Laugavégá 103
10
VÍKINGUR