Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Qupperneq 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Qupperneq 15
Áróður eða upplýsing? í áróðri LÍÚ og útvegsmanna á Vestfjörðum gegn kjara- kröfurn sjómanna hefur verið hamrað á því að sjómennirnir væru hálaunamenn. „En þessi kröfugerð Sjómannafélags ísfirðinga nú fyrir hönd tekjuhæstu einstaklinga landsins er einstök." segir formaður LÍÚ í viðtali við Morgunblaðið 19. mars sl. Fyrirsögnin á því viðtali var: „Meðaltekjur háseta á ísafjarðartogurununr tæpar 6 milljónir frá áramótum." Við þetta er sitthvað að athuga: I fyrsta lagi er fullyrðingin um 6 milljón króna tekjurnar beinlínis röng (eins og reyndar er viðurkennt í sjálfu viðtal- inu). Enginn háseti hefur haft þessar tekjur. Eins og vinnu- álagið hefur verið á þessum togskipum, veitir mönnum ekki af að taka sér hvíld túr og túr. í viðtalinu hér við hliðina kemur fram að nokkuð er misjafnt hve löng frí sjómennirnir taka sér, frá tveimur upp í fjóra mánuði á ári. Miðað við að háseti hafi tekið sér frí fjórða hvern túr, hefur raunverulegur hásetahlutur verið frá 8 upp í 15 milljónir á ísafjarðartogur- um á sl. ári. Eru þetta tekjuhæstu einstaklingar landsins? í öðru lagi er það ávallt ámælisvert í málflutningi að slíta eitt atriði úr raunréttu samhengi. Þegar háar launatölur eru nefndar væri ekki úr vegi að geta þess að einhverju hvað rnenn hafa fyrir tekjunum sínum. í viðtalinu kemur fram að þrátt fyrir lög og samninga sem kveða á um samtals tólf tíma frívakt á sólarhring, er hún í raun helmingi styttri. Tekjurnar eru fengnar með gegndarlausu vinnuálagi. I þriðja lagi mætti spyrja: Hvers vegna nefnir fornraður LÍÚ einungis háar tekjur sjómanna? Hvers vegna upplýsir hann ekki í leiðinni landslýðinn um það, hver var hagnað- urinn af útgerð Vestfjarðatogaranna á síðasta ári? Eða skiptir það kannski engu máli, hvað er til skiptanna? Hér er um að ræða atvinnutæki sem keypt eru fyrir almannafé og rekin eru fyrir vinnuafl sjómanna. Það er síður en svo neitt einkamál útgerðarmanna hvernig þessi skip eru rekin né hvernig rekstur þeirra gengur. Hví skyldi ekki hlutur sjómanna vera góður, þegar metfiskirí er og útgerðin stendur með blóma? sambandi að meðaltekjur háseta á ísafjarðatogurum væru orðnar tæpar 6 milljónir króna frá ára- mótum. Þetta kom t.d. fram í Morgunblaðinu í gær. Hvað segið þið um þessar tölur? Hver er hinn raunverulegi hásetahlutur? Gunnar: Þessi tala gæti kannski staðist um togarana hér, ef háseti er um borð allan tímann frá ára- mótum. En það er mjög hæpið, þar sem um er að ræða þvílíkt vinnuálag, eins og fiskiríið hefur verið. Þetta er algjör metvertíð. Það er mjög vafasamt að nokkur maður haldi það út að taka sér enga hvíld frá störfum í svona fiskiríi. Ég vil líka benda á það að formaður LÍÚ gefur það í skyn að við höfum 2Vi milljón á mánuði. Það er ekki annað á honum að skilja en að þetta séu tekjur sem við höfum út árið. En sannleikur- inn er sá að þegar svona vel geng- ur eins og núna, þá hlýtur þrosk- veiðibann á flotann að lengjast. Það er ákveðinn kvóti sem má fiska. Því betur sem aflast nú framan af árinu, því lengra má gera ráð fyrir að þorskveiðibann verði. Við sjáum nú fram á að minnsta kosti fjögurra mánaða bann, og skipin verða þá að veiða aðrar ódýrari fisktegundir, eins og t.d. grálúðu, og það er hætt við því að af þessum sökum verði nú tekjurnar eitthvað lægri en Krist- ján er að tala um. T.d. má nefna að verð grálúðu rétt nær hálfu þorskverði. Fyrir utan nú það að þessum svokölluðu skraptúrum fylgir miklu meiri vinna en þorsk- veiðunum. 12—13 milljóna árstekjur án fría Vík.: Getið þið nefnt mér dæmi um hásetahlut á togurunum á sl. ári. Rúnar: Ég veit um hásetahlut- inn á Guðbjarti, hann var milli 12 og 13 milljónir, miðað við að háseti tæki sér ekki frí. Gunnar: Ef við reiknum með eðlilegunr fríum, má draga af þessu 25%. Eitt má mjög gjarnan koma hér fram: Við undirbúum okkar kröfugerð fyrir áramót, og þá gát- um við náttúrulega ekki séð fyrir hvemig fiskiríið mundi verða eftir áramót. Okkur dettur auðvitað ekki í hug að draga okkar kjara- kröfur til baka, þó að vel fiskist. Góður afli er ekki bara sjómönn- um í hag. Útgerðin fær líka sinn hlut og það ekki lítinn. Grímur: Sjómennska er lotterí. Sjómenn hafa orðið að sætta sig við mjög rýran hlut langtímum saman. Það nær engri átt að þegar koma góðir aflatoppar sem bæta upp rýru tímabilin, þá séu þeir notaðir sem allsherjarviðmiðun fyrir tekjur sjómanna. Það er al- veg óvenjulegur aflatoppur núna. Það má held ég fullyrða að annar VÍKINGUR 15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.