Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Page 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Page 16
F.v.: Gunnar Þórðarson, Pétur Sijjurðsson, Grímur Jónsson, Sigurður Ásgeirsson, Rúnar Grímsson. eins landburður af fiski og hér hefur verið frá áramótum hefur aldrei verið í þessari verstöð, né yfirleitt hér á Vestfjörðum. Sum skip hafa fengið greitt með olíunni Vík.: Höfðuð þið í kröfugerð ykkar hliðsjón af vitneskju um góða afkomu útgerðar? Gunnar: Já það má segja það, sérstaklega þar sem við nú hleyp- um þessu af stað út af olíugjald- inu. Við höfum t.a.m. vitneskju um það að á sumum skipum hérna hafi útgerðin fengið greitt með olíunni, olíusjóðurinn gerði sem sé meira en greiða olíuna, útgerð- in átti afgang. Þetta er það atriði sem má segja að komi okkur af stað. Grímur: Á fyrsta viðræðufund- inum með útvegsmönnum barst það m.a. í tal, að útgerðarmenn sem reka hérsmærri báta, tóku þá stefnu upp sjálfir að taka olíu- gjaldið til skipta. Þeim fannst það mjög sjálfsagt og réttlátt. En þegar minnst er á þetta varðandi stærri skipin, þá er þetta álitið algjörlega fráleitt. 16 Gunnar: Þegar sjóðakerfið er stokkað upp, og það sem tekið er af óskiptu er lækkað úr 27% niður í 15% — jafnframt er því þá lofað að þessi prósenta eigi eftir að lækka enn frekar — þá er jafn- framt lækkuð skiptaprósentan til sjómanna um 5.2 prósentustig til að koma til móts við þessa rýrnun sjóðakerfisins. Þetta er gert með einu pennastriki við uppstokkun sjóðakerfisins. Síðan er sjóðakerf- ið aukið aftur, en skiptaprósentan okkar hún á að vera óbreytt. Grímur: Krafan okkar um \Vi% hækkun skiptaprósentu, þýðir þannig raunverulega að við erum að reyna að halda í skiptahlutfall sem við höfðum. Vík.: Hafið þið í höndunum nokkrar greinargóðar upplýsingar urn afkomu útgerðarinnar á sl. ári. Hafa útvegsmenn lagt fram nokkrar slíkar upplýsingar? Grímur: Við höfum ekki að- gang að rekstursreikningum skip- anna hérna, og mundi vafalaust ekki verða hleypt í þá. Útvegs- menn eru með fullyrðingar um slæma afkomu útgerðar, en þeir hafa ekki nefnt okkur neinar tölur í því sambandi. Vík.: Fullyrðingar um slæma afkomu útgerðar? Grímur: Já, þær hafa heyrst hjá vissum aðilum, en ekki hafa nú allir útgerðarmenn tekið þátt í slíku. Okkur þykir það auðvitað mjög tortryggilegt að afkoma út- gerðar hér geti verið slæm. Ef það er rétt að þær upplýsingar hafi borist frá Þjóðhagsstofnun að rekstur minni skuttogara á land- inu í heild standi á núlli, þá hljóta vestfirsku togskipin að standa nokkuð langt fyrir ofan núllið. Guðbjörgin fékk 83 milljónir úr stofnfjársjóði og 54 milljónir úr olíusjóði 1979 Pétur: Eitt má enn nefna í sambandi við olíusjóðinn og niðurgreiðslu á olíu til útgerðar. Eins og fram kom áðan, var á sín- um tíma þegar sjóðakerfinu var breytt, sæst á þau lög sem sett voru, þó að nokkuð hafi verið misjafnt hvenig menn tóku því að skiptaprósentan var lækkuð. En fiskverð hækkaði þá jafnframt verulega, sem þýddi það að það skilaði sér í hækkuðu fiskverði sem nam því sem dregið var úr sjóðakerfinu. Þá sættu útgerðar- menn sig við það að í þeirra hlut kæmi að greiða olíuna, það var talið eðlilegt. Þegar olíuhækkan- irnar verða, þá standa þeir þó ekki við sinn hlut, heldur er áreiðan- lega undan þeirra rifjum runnið að stofnað er til þessa olíusjóðs, og sem þýðir auðvitað það að fisk- verð hækkar minna, en ella hefði orðið. Þessi olíusjóður gerði meira en að greiða þá hækkun sem á olíunni varð, í mörgum tilvikum greiddi hann allan olíukostnaðinn sem áður hafði verið — og um hafði raunverulega verið samið að útgerðin tæki á sig — og þar sem best lét þar hafði útgerðin mill- jónir í afgang. Þar fyrir utan hefur alla tíð verið tekið af óskiptu í stofnfjár- VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.