Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Blaðsíða 20
Ætli hann yrði ekki álitinn dálítið skrýtinn sá skipverji sem vildi fara að löguni og neitaði
að vinna frívaktina sína þegar svona stendur á. Myndin er tekin um borð í skuttogaranum
Guðbjarti frá ísafirði um mánaðamót júlí—ágúst 1978. Talið var að 50—60 tonn væru í
lialinu. Ljósm.: Gunnar Örn Gunnarsson.
gerð kjarasamninga hér heima í
héraði. Við teljum lilut okkar bet-
ur borgið þannig, enda teljum við
að við eigum í mörgum málum
ekki samleið með öðrum lands-
hlutum og teljum sem sé eðlilegt
að hver landshluti semji fyrir sig,
þar sem hver um sig hefur nokkra
sérstöðu hvað varðar veiðiaðferð-
ir, fjölda veiðiskipa sem nota
ákveðnar veiðiaðferðir o.fl.
Við förum ekki algjörlega einir
af stað að því leyti að önnur félög
fengu að vita um okkar aðgerðir,
þær voru kynntar, og við fengum
mjög jákvæðar undirtektir frá
Bolvíkingum, þar sem er næst-
stærsti hópur sjómanna ef ekki
jafnstór og hér, þó að þeir séu í
blönduðu félagi. Reynsla undan-
farinna ára hefur margsýnt það að
annað hvort fer Sjómannafélag
Isfirðinga af stað með sína kröfu-
gerð og hinir fylgja á eftir eða það
er ekkert farið af stað.
Gunnar: Okkar kröfur eur jafn-
framt sameiginlégar kröfur sjó-
manna á Vestfjörðum, eins og
komið hefur fram hér áður, við
förum bara fyrstir af stað með þær
og fyrr en önnur sjómannafélög á
landinu. En svo gerist það að út-
gerðarmenn neita að ræða við
okkur, og það er ástæðan til verk-
fallsins.
Að gefa eftir eða
standa fast á kröfum
Vík.: Verkfall hefur verið boðað
frá og með deginum í dag, 20.
mars, á togurum, og frá 30. mars á
öðrum skipum. Sjómannafélagið
hér er eina félagið á Vestfjörðum
sem hefur boðað verkfall. Eigið
þið von á því að fleiri fylgi á eftir?
Gunnar: Já, við eigum von á
því. Það hefur komið samþykkt
frá Verkalýðsfélaginu Súganda,
þar sem það lýsir því yfir að það
hyggi á einhverjar ráðstafanir,
skæruverkföll eða annað slíkt,
sem þýðir það að þeir ætla að
standa við hliðina á okkur.
Vík.: Hafa ASV og verkalýðs-
félögin á Vestfjörðum ávallt verið
sér um samningagerð?
Pétur: Já, alla tð.
Vík.: Hafa nokkrar óskir komið
fram frá sjómannafélögum annars
staðar eða Sjómannasambandinu
um að þið hefðuð samflot?
Pétur: Nei. Málið er þannig
vaxið að Sjómannafélag ísfirð-
inga setur fyrst fram sínar kröfur
um breytingar á samningum sem
lausir voru um áramót. Það er
eðlilegur gangur mála að þegar
20
VÍKINGUR