Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Qupperneq 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Qupperneq 31
heyrði til Júgóslavans sem bjó í herberginu við hliðina á eldhús- inu, heyrði hann leita bölvandi að slökkvaranum áður en hann gekk inní herbergið sitt. Fyrst þegar ég hafði búið þarna í þrjár vikur og handlék víst myndina af Karli í fimmtugasta skipti sá ég, að sporvagninn sem hann stóð hlæjandi framanvið með peningatöskuna sína var ekki tómur. Ég horfði í fyrsta sinn af athygli á myndina og sá að bros- leit stúlka inni í vagninum hafði lent með á henni. Það var sú lag- lega sem ég hafði hugsað svo oft um í stríðinu. Húsmóðirin kom í áttina til mín, horfði rannsakandi í andlit mér og sagði: „Nú berið þér kennsl á hann, ha?“ Síðan gekk hún bakvið mig, horfði á myndina yfir öxl mér. Hún hafði hrifsað saman svuntuna sína og uppmeð bakinu á mér liðaðist þefur af nýjum baunum. „Nei“, sagði ég lágt, „en stúlk- una“. „Stúlkuna?“, sagði hún, „það var unnusta hans, en kannski er það gott að hann sá hana ekki aftur — “ „Hversvegna?“, spurði ég. Hún svaraði mér ekki. færði sig frá mér, settist á stólinn sinn við gluggann og hélt áfrani að afhýða baunir. Án þess að líta á mig sagði hún: „Þekktuð þér stúlkuna?“ Ég kreisti myndina í hendi mér, leit á húsmóður mína og sagði henni frá sápuverksmiðjunni, frá endastöð níunnar og laglegu stúlkunni sem alltaf hafði stigið þar uppí. „Ekkert meira?" „Nei“, sagði ég, hún lét baun- irnar skoppa niður í sáld, skrúfaði frá krananum og ég sá einungis mjótt bak hennar. „Þegar þér sjáið hana aftur munuð þér skilja af hverju það var gott að hann sá hana ekki aftur (( „Sé hana aftur?“, sagði ég. VÍKINGUR Hún þurrkaði sér um hendurn- ará svuntunni, kom til mín og tók myndina varlega úr hendi mér. Andlit hennar virtist enn hafa mjókkað, augu hennar horfðu framhjá mér en hún lagði hönd sína hljóðlega á vinstri handlegg rninn. „Hún býr í herberginu við hliðina á yður, hún Anna. Við segjum alltaf við hana föla Anna, af því andlit hennar er svo bleikt. Hafið þér virkilega ekki séð hana ennþá?“ „Nei“, sagði ég, „ég hef ekki séð hana ennþá en víst heyrt í henni fáeinum sinnum. Hvað amar eiginlega að henni?" „Égsegi það ógjarnan en það er betra að þér vitið það. Andlit hennar er allt sundurtætt, fullt af örum -------- loftþrýstingurinn slöngvaði henni á búðarglugga. Þér munuð ekki bera kennsl á hana aftur“. Ég beið lengi um kvöldið uns ég heyrði fótatak í forstofunni en í fyrsta skiptið skjöplaðist mér: það var hávaxni Júgóslavinn sem leit á mig hissa þegar ég kom svo skyndilega æðandi frammí for- stofuna. Ég sagði feimnislega „gott kvöld“ og fór aftur inní her- bergið mitt. Ég reyndi að sjá fyrir mér andlit hennar með örum en mér tókst það ekki. Alltaf þegar ég sá það var það fallegt — líka með örum. Ég hugsaði um sápuverksmiðj- una, um foreldra mína og um aðra stúlku sein ég hafði oft farið út með í þá daga. Hún hét Elísabet en lét kalla sig Mutz og hún hló alltaf þegar ég kyssti hana og mér fannst ég vera kjáni. Ég hafði skrifað henni póstkort úr stríðinu og hún sendi mér pakka með heimabökuðum smákökum sem voru orðnar að mylsnu þegar þær komu. Hún sendi mér vindlinga og dagblöð og í einu bréfa hennar stóð: „Þið munuð sko sigra og ég er stolt að þú ert með í því“. En ég var alls ekkert stoltur af að vera með í því og þegar ég fékk leyfi skrifaði ég henni ekkert um það og fór út með dóttur tóbaks- sala sem bjó í húsinu okkar. Ég gaf dóttur tóbakssalans sápu sem ég fékk frá verksmiðjunni minni og hún gaf mér vindlinga. Við fórum saman í bíó, út að dansa og eitt sinn þegar foreldrar hennar voru að heiman tók hún mig með sér uppá herbergið sitt og í myrkrinu stjakaði ég henni niðurá legu- bekkinn; en þegar ég beygði mig yfir hana kveikti hún ljósið, brosti lævíslega upptil mín og í skjanna- björtu Ijósinu sá ég Hitler hanga á veggnum, litmynd, og á róslitað veggfóðrið höfðu verið hengdir upp menn, harðúðugir á svip og mynduðu hjarta umhverfis Hitler. Þetta voru kort, fest með teikni- bólum, karlmenn með stálhjálma og allir klipptir útúr myndablaði. Égskildi stúlkuna eftir liggjandi á legubekknum, kveikti mér í vindlingi og fór út. Seinna skrif- uðu báðar stúlkurnar mér póst- kort í stríðið. þar stóð að ég hefði hagað mér illa en ég svaraði þeim ekki... Ég beið lengi eftir Önnu, reykti marga vindlinga í myrkrinu, hugsaði um margt og þegar lykl- inum var stungið í skrána var ég of hræddur til að standa upp og sjá andlit hennar. Ég heyrði hana opna herbergið. ganga raulandi fram og aftur þar inni og seinna stóð ég og beið í forstofunni. Mjög skyndilega varð hljótt í herbergi hennar. Hún gekk ekki lengur fram og aftur, söng heldur ekki lengur og ég var hræddur við að banka. Ég heyrði í Júgóslavanum hávaxna sem gekk fram og tilbaka í herbergi sínu og muldraði lágt, ég heyrði vatnið sjóða í eldhúsi húsmóður minnar. En í herbergi Önnu var áfram hljótt og í gegn- um opnar dyrnar á mínu sá ég svarta blettina eftir vindlingana sem ég hafði drepið í á veggfóðr- inu. 31
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.