Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Page 34
Úr myndasafni
Ragnars Agústssonar,
skipstjóra á Brúarfossi
Árið 1956 fór Goðafosss sögulega ferð til Finnlands, lenti í ís í Austursjónum og sat
fastur i isbreiðunni í 32 daga. Þá voru aðdrættir að skipinu allir á hestasleðum eins og sjá
má af meðfylgjandi mynd. En það var oft erfitt að koniast út úr Hangö höfn sakir íss á
veturna. Ragnar sagði okkur sögu af því að eití sinn hefðu átta skip verið að leggja úr
höfn og fór á undan þeim ísbrjótur. Sjö skipanna héldu austur á bóginn til Helsingfors, en
þeir þurftu að halda vestur á bóginn, og stungu einni koníaksflösku að hafnarstjóranum
og annarri að kapteininum á ísbrjótnum til þess að verða fyrstir til að komast leiðar
sinnar. Það hefur víst verið svipur á áhöfnum hinna skipanna sjö þegar þeir sáu að
íslcnska skipinu var rudd leiðin á undan þeim, en, eins og Ragnar sagði, sést af þessu, að
nauðsynlegt er, að skipstjórar hafi góða risnu.
( ^
Nýlega fengu
Víkingsmenn að
kíkja í myndasafn
Ragnars Ágústssonar,
skipstjóra á Brúar-
fossi, og eru
meðfylgjandi myndir
úr safni hans,
en Ragnar hefur
stundað farmennsku
í yfir þrjátíu
ár.
V._____________________________)
34
VÍKINGUR