Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Side 50
Loftskeytamenn á loftskeytastöð
Landhelgisgæslunnar
1. grein
Fá inn í samninginn ákvæði um
að biðvakt verði eins og er í dag.
2. grein
Greitt verði fastagjald af einum
síma á ári, vegna starfa á loft-
skeytastöð Landhelgisgæslunnar,
vegna biðvaktar.
3. grein
Landhelgisgæslan sjái um
námskeið og fræðslu fyrir loft-
skeytamenn stofnunarinnar,
þannig að þeir hafi þá þekkingu,
seni starf þeirra krefst á hverjum
tíma.
Hafa skal samráð við starfs-
menn um fyrirkomulag slíkrar
þjálfunar tvisvar á ári (t.d. mars og
september).
4. grein
Yfirvinna greiðist milli kl.
12:00—13:00, loftskeytamaður á
rétt á einnar klst. matarhléi eftir
sem áður.
5. grein
Loftskeytamaður hjá Land-
helgisgæslunni fái greiðslu vegna
tilfallandi bílakostnaðar, á sama
hátt og aðrir ríkisstarfsmenn.
Þurfi loftskeytamaður að mæta til
starfa á loftskeytastöð milli kl.
17:00—08:00 virka daga og á
laugardögum, sunnudögum,
helgi- og/eða tillilögum, skal
Landhelgisgæslan sjá honum fyrir
fríum ferðum, milli heimilis og
vinnustaðar.
Þingmaður fyrir heldur illa
ræmt borgarhverfi var að sýna
nokkrum kunningjum sínum,
hversu vel honum hefði tekist að
bæta ástandið. Hann hafði útrýmt
verstu óþverrabælunum og af-
brotaunglingum hefði stórfækk-
að. Gestirnir voru mjög svo hrifn-
ir, uns þeim varð gengið meðfram
hrörlegu húsi. Niðuryfir þá rigndi
niðursuðudósum, ösku, matar-
leifum og hverskyns óþverra. Og
mannskepnan, sem fyrir þessu
stóð, hrópaði niður til þeirra
óprenthæfar svívirðingar.
Þingmaðurinn missti stjórn á
skapi sínu og kallaði upp: „Ég
skora á þig að koma hingað niður.
Ég skal berja þig í plokkfisk!“
„Hvern fjandann meinarðu —
koma niður?“ var svarað að ofan,
og pínulítið barn birtist í glugg-
anum. „Ha, helvítis, skítuga rott-
an þín, ég er ekki einusinni farinn
að ganga ennþá!“
Útgerðarmenn
Nýtt frá FURUNO í Japan fyrir loðnuleit
Hringsjá 360’’
Veróur til sýnis á sýningu sjávartækja í Kaup-
mannahöfn 1.—10. júní í sumar.
Athyglisvert tæki er gegnir nútíma kröfum.
Frekari upplýsingar hjá
Skiparadió h.f.
Vesturgötu 26b Reykjavík. Sími 20230, Telex-2204
50
VÍKINGUR