Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Page 64
Umsjónarmaður: Helgi Hróbjartsson
^ir'
L>E> I® A RS'T EIM A R
„Að hafa Guðs orð sem leiðar-
stein í stafni . . .“ (M.Joch.)
Með þessari yfirskrift vil ég ríða
á vaðið og skrifa nokkrum sinnum
í Sjómannablaðið. Vona ég að það
geti orðið einhverjum til góðs.
Áður fyrr þegar ekki var til
áttaviti var talað um að sjómenn
sem sigldu yfir úthöfin hafi haft
ákveðinn stein sem kallaður var
„sólsteinn“, til þess að ákveða
stöðu sólar og þar með stefnu
skipsins. Þörf var á þessu þegar
ekki sást til sólar vegna dimm-
viðris.
Slíkur „sólsteinn“ var leiðar-
steinn fyrir skipið. Til fróðleiks
má nefna að leiðarsteinn er gam-
alt orð. íslenska orðabókin þýðir
þetta orð sem segulstein eða átta-
vita. Mattias Jochumsson yrkir í
einum af sínum sálmum,
Legg þú á djúpið, þú, sem enn ert
ungur,
og æðrast ei, þótt straumur lífs sé
þungur,
en set þér snemma háleitt mark
og mið,
haf Guðs orð fyrir leiðarstein í
stafni
og stýrðu síðan beint í Jesú nafni
á himins hlið.
Betri leiðarstein er ekki hægt að
fá í þeim ólgusjó lífsins sem við
64
lifum í. Þetta er okkar viðmiðun-
artæki, þetta er okkar „Loran“, til
þess að hægt sé að sigla um höfin.
Við eigum margar bækur, mörg
rit um vísindi og heimsspeki og
þær hugmyndir sem maðurinn
gegnum aldirnar hefur glímt við,
en engin bók er þó eins og Biblían
þegar um viðmiðun hins andlega
lífs er að ræða.
Guð sagði einu sinni fyrir munn
Jeremía spámanns (Jer. 1: .2) ,„ ..
ég vaki yfir orði mínu, til þess að
framkvæma það“. Það þýðir að
þegar Guð hefur talað eitthvað
eða sagt eitthvað, þá vakir hann
yfir því orði. — í Biblíunni getum
við séð hvernig Guð hefur vakað
yfir orði sínu. Við getum lesið um
Abraham, ísak og Jakob hvernig
þeir hver fyrir sig fengu að reyna
að Guð vakti yfir fyrirheitunum
sem hann gaf þeim. — Við getum
lesið um Móses þar sem hann
leiddi ísraelsfólkið út af Egypta-
landi til fyrirheitna landsins. Þeir
fylgdu Guðs orði og það brást
þeim ekki. — í dag getur enginn
heldur lokað augunum fyrir því
sem hefur gerst í ísrael. Er það
ekki einmitt hinn sami Guð sem
vakir yfir orði sínu?
Þegar við lesum orð Jesú Krists
í Biblíunni, „Komið til mín allir
þér sem erfiðið og þunga eruð
hlaðnir og ég mun veita yður
hvíld", þá er það einnig orð sem
Guð vakir yfir til þess að fram-
kvæma á þeim sem tekur það til
sín. — Og þannig verður Orð
Guðs leitarsteinn í lífi manns. —
Leyfðu þeim leiðarsteini að
vera í stafni í skipi þínu.
SPARISJÓÐUR
VÉLSTJÓRA
BORGARTÚNI 18-105 REYKJAVlK
PÓSTHÓLF 757 - SlMI 28577
Sjómenn beinið
viðskiptunum yðar
í yðar eigin
peningastofnun.
Afgreiðslutími kl.
09.15—16.00 alla
daga nema
fimmtudaga frá kl.
09.15—18.00
VÍKINGUR