Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Page 65
Mannskaðaveður
á Vestfjörðum
Þann 25. febrúar sl. fórust sex sjómenn með þremur vest-
firskum rækjubátum er fárveður gekk yfir landið.
Með Gullfaxa fórust bræðurnir Ólafur S. Össurarson og
Valdimar Þ. Össurarson fsafirði. Ólafur var 48 ára gamall,
kvæntur og þriggja bama faðir. Valdimar var 40 ára, kvæntur
og átti 4 syni.
Með Vísi fórust Pétur Valgarð Jóhannsson og Hjálmar
Einarsson frá Bíldudal. Pétur var 44 ára, kvæntur og fimm
bama faðir. Hjálmar var 36 ára, kvæntur og fjögurra barna
faðir, en hann átti einnig stjúpbarn.
Með Eiríki Finnssyni fórust Haukur Böðvarsson og Daníel
Jóhannsson frá ísafirði. Haukur var 31 árs og ókvæntur en
Daníel var 35 ára, kvæntur og tveggja barna faðir.
19 börn urðu föðurlaus þegar þessir þrír bátar fórust.
Sjómannablaðið Víkingur vottar aðstandendum þessara
manna dýpstu samúð sína. Minning þeirra og annarra, sem
farast við störf sín á hafi úti, fyrnist ekki, heldur helst með
þjóðinni.
Ólafur S. Össurarson
Valdimar Þ. össurarson
Pétur Valgarð Jóhannsson
Hjálmar Einarsson
Haukur Böðvarsson
Danícl Jóhannsson
VÍKINGUR
65