Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Page 39
Nikulás Halldórsson 2. stýrímaður situr við borðið og ræðir lcstunarplanið við þá Guðna
Sigþórsson, yfirverkstjóra og Jóhann Ragnarsson, verkstjóra. Guðni og Jóhann eru
báðir menntaðir sem stýrimenn.
framleiðanda. Það vakti athygli
mína að ekkert stýrishjól var í
brúnni. Við nánari athugun sá ég
þar tvær stangir sem mynduðu
vaff. Botninn á vaffinu var síðati
festur á ás, þetta var stýrið. Þá
kom mér í hug sú staðreynd, að
fyrir um það bil tveim öldum
hafði stýrishjólið útrýmt svo köll-
uðu svipuskafti, sem var stýris-
stöng og þjónaði sama tilgangi og
vaffið, sem fyrr er nefnt, þótt
tengd væri hún stýrinu með öðr-
um hætti. Önnur siglingatæki
voru dýptarmælir, radíómiðari og
Magnavox 1242 Satellet
Navigator (tæki til siglinga eftir
gerfitunglum).
Úr brúnni lá leiðin niður í
skipið. Ætlunin var að kanna
nánar hina nýju flutningatækni,
ekjuskipið (fjölskipið). Stundum
nefnt f.f. skip hér á landi, (f.f.
þýðir fjölhæfni og fljótfermi).
Fari hallinn yfir 1,5°
má ekki aka um skutbrúna
Nikulás Halldórsson 2. stýri-
maður, sem átti hafnarvakt að
þessu sinni, var í klefa sínum á tali
við Guðna Sigþórsson yfirverk-
stjóra og Jóhann Ragnarsson
verkstjóra, er mig bar að garði.
Rætt var fyrirkomulag farmsins er
lesta átti.
Ég staldraði við og beið þess að
umræðum lyki. Á meðan kom
Baldur Ásgeirsson, 1. stýrimaður.
Baldur spurði Nikulás hvort hann
hefði hlustað á veðrið. Aðspurður
kvað Baldur að ætlunin væri að
lesta í Straumsvík. En ef nýta ætti
kosti ekjuskipsins þ.e. að aka
farminum um borð, þyrftu þeirað
leggjast við akkeri nokkuð frá
bryggjunni og stilla svo til að
afturendinn næmi við bryggju-
kantinn. Það er augljóst að þetta
heppnast ekki nema veður sé
skaplegt.
Er þeir Nikulás, Guðni og Jó-
hann höfðu komist að samkomu-
lagi um hvernig farminum skyldi
fyrir komið, þurfti Nikulás að
sinna nokkrum aðkallandi verk-
efnum. Að þeim loknum gekk
hann með mér niður í farmrými.
Við losun og lestun verður sér-
staklega að gæta þess að skipið sé
kjölrétt (hallist ekki). Til að auð-
Gámadekkið er eins og sjá má alveg í skjóli af brúnni, sem er fyrir framan það.
VIKINGUR