Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1992, Qupperneq 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1992, Qupperneq 31
RISINN SIGLIR A NY Loksins er lokið viðgerð á risanum mikla Jahi'e Viking, en þetta skip er það stærsta í heimi og mælist 564.739 tonn. Jahre Viking hét áður Seawise Giant og undir því nafni varð skipið fyrir miklum skemmdum í stríðinu milli írana og íraka í maímánuði árið 1988. Endurbygging skipsins fór fram hjá Keppel skipasmíðastöðinni í Singapore og kostaði rúmar 38 millj- ónir bandarikjadollara, eða um 2,2 milljarða íslenskra króna. Talsverð töf varð á endurbyggingu skipsins þar eð umtalsvert magn af ósprungn- um sprengjum fannst í skipinu. Skipið er nú í eigu norsku útgerðar- innat Jahre Shipping, með Osló sem heimahöfn. EITURLYFJAVANDI Nýjar reglur unt eiturlyfjapróf fyrir bandaríska sjómenn gengu í gildi í Bandaríkjunum 1. október s.l. Miklar deilur risu þegar bandaríska strandgæslan (USCG) kynnti fyrst þessar reglur í nóvember 1988 og var höfðað mál fyrir bandarískum dóm- stólum til að hindra frantkvæmd þessara reglna. Niðurstöður dómsins voru þær að USCG yrði að endur- vinna reglurnar og urðu þær fyrst að veruleika s.l. október. Reglurnar kveða á um að útgerðir kaupskipa verði að láta sjómenn í þjónustu sinni gangast undir eiturlyfjapróf reglu- lega en þess er ekki krafíst með áhafnir fiskiskipa svo og rannsóknar- manna urn borð í rannsóknaskipum. Víða í Evrópu hafa fyrirtæki sjálf komið sér upp reglum hvað þetta varðar og hefur gætt talsverðrar óánægju meðal sjómanna þar, þeir telja fyrirtækin leggja alla undir grun um ólöglega lyfjanotkun. VÉLSTJÓRAÞÆGINDI Ýmsum nýjum hugmyndum skýt- ur alltaf öðru hverju upp á yfir- borðið þegar verið er að hanna ný skip. Nýlega var lokið við smíði á 122 metra löngu gámaskipi hjá Husumer Werft (Perla ex Grjótjötunn var smíðuð þar) í Þýskalandi sem gefið var nafnið Wodan. Sú nýjung er á smíði þessa skips, sem jafnframt er stærsta skip sem smfðastöðin hefur byggt, að aðalvél skipsins er höfð öll fyrir framan yfirbygginguna. Nú þarf ekki lengur að taka yfirbygging- una af vegna stórviðgerða á aðalvél Jahre Viking, sem Seawise Giant. Jahre Viking áður en viðgerð hófst 1988. eða drösla hlutum eftir íbúðargöng- um til að koma þeim niður í vél. Því er svo við að bæta að stærð skipsins ákvarðaðist af breidd þess þar eð skip þurfa að fara um skipakví til að komast út úr höfninni í Hiisum en einungis 44 millimetrar voru upp á að hlaupa við að koma Wodan þaðan út. SNEMMA BEYGIST... Síðastliðið sumar fóru fulltrúar ITF, að beiðni breska sjómannafé- lagsins (NUS), um borð í pólskt skip sem var í höfn í Belfast á írlandi. an. 31

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.