Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 4

Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 4
Þar sem þverskurður fæst, kemur í ljós aö efniö í „jöklinum" er að lang- mestu leyti fremur fingerður vikur, aska og brot úr súru bergi, andesíti og jafnvel líparíti. Vikurinn er ferskur og auðsjá- anlega nýtt efni (primert material). Annað, sem vekur atliygli er að grófara efniö er einkum ofantil i sniðinu og stórbjörg ekki finnanleg nema ofan á „jöklinum“. Kötluklettur nefnist bjarg eitt mikið á sandinum um 1 km austan við Hjör- leifsliöfða og sem Kötluhlaupið 12. október 1918 bar þangað ofan úr jökli eða líklega um 15 km leiö. Enginn vafi er á að bjarg þetta kom í hlaupinu 1918 ogeru um það ntargar heimildir. Meðal þeirra er frásögn Kjartans L. Markús- sonar (1960), sem átti heima i Hjörleifs- höfða þegar gosið varð og sem síðar gaf kletti þessum nafn. Hann mældi klett- inn og telur hann 5 m háan upp úr sandi og 36 m ummáls niðri við sand. Kemur þetta vel heint viö lauslega mælingu, sem gerð var fyrir mörgum árum og aftur 19. mai 1975 (2. mynd). Kjartan Leifur hafði grafið 2 m niður með bjarginu, en dýpra varð ekki komist vegna vatns. Telur hann rúmtak bjargsins vera 570 m3 og áætlar þyngd þess um 2000 tonn. Hann reiknar þá með eðlisþyngd 3,5, en það er of hátt. Kötluklettur er úr móbergi og má nánast greina það sem fremur fínkorn- ótt þursaberg (palagonite breccia). í því eru bólstrabrot og einstaka litlir bólstr- ar. Við athugun hefur kontið i ljós að eðlisþyngd bergs J^essa er 2,62, en ntæl- ingu á Jdví hefur Svanur Pálsson gerl fyrir mig og kann ég honum J^akkir fyrir. Samkvæmt jDessu og mælingu Kjartans L. Markússonar telst ekki ólíklegt að Kötluklettur muni vega 1400 tonn eða meira. 1. mynd. Jarðvegstorfa, a. m. k. 90 m löng og meira en 2 m Jrykk, borin fram af Kötlu- hlaupinu 1721 eða 1755. — Large, coherent block of soil, rnore than 2 m thick and 90 m tong, transþorted by the Katla ftood of 1721 or 1755. 82

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.