Náttúrufræðingurinn - 1981, Qupperneq 12
í
Heildarflatarmál og flatarmál innan
mismunandi dýptarlina í firðinum voru
fundin með flatarmæli (planimeter).
STÆRÐ OG DÝPI
Frá Hvammsfjarðarröst og inn eftir
firðinum miðjum gengur áll með meira
en 20 metra dýpi, og fer mjög breikk-
andi þegar komið er inn fyrir Lambey.
Samkvæmt sjókorti sem raunar er byggt
á mjög gömlum mælingum, er dýpi
mest í Hvammsfirði um 51 metri i um
það bil einnar sjómílu fjarlægð SA frá
Lambey. En á meginhluta svæðisins
innan 20 metra dýptarlínunnar er dýpi
28—40 metrar. Á móts við Búðardal
endar svæðið, þar sem dýpi er meira en
20 metrar, en 10 metra línan teygist alla
leið á móts við Skarfsstaðanes.
í Töflu II er sýnt flatarmál innan mis-
munandi dýptarlina, heildarflatarmál
og rúmmál fjarðarins. Fjarðarmynnið
miðast við línu sem hugsast dregin í
stefnu norður rétt austan við Brokey.
Með hliðsjón af tölunum í töflunni
má reikna, að meðaldýpi Hvamms-
fjarðar á stórstraumsfjöru sé
(5.303/339.6) X 10;i = 15.6 m, en
(5.720/353.65) X 10-' = 16.2 m við
hálffallinn sjó.
NIÐURSTÖÐUR MÆLINGA Á
HITA, SELTU OG
NÆRINGARSÖLTUM
Eins og vænta mátti fór seltumagn
lækkandi inn eftir firðinum (2. mynd)
frá 33%p í yfirborði sunnan Lambeyjar
að 29.8%c við fjarðarbotn. Nokkur
óregla kemur fram í seltudreifingunni,
sem rekja má til áhrifa frá fallvötnum og
sjávarfallastraumum. Þannig var all-
áberandi seltulækkun undan ós Laxár,
skammt sunnan við Búðardal. Hvernig
hinn ferskvatnsblandaði sjór berst um
fjörðinn hverju sinni er svo háð því,
hvort um er að ræða aðfall eða útfall,
þegar sýnin eru tekin. Hins vegar getur
seltulækkunin innan fjarðarins ekki
TAFLA II
Flatarmál og rúmmál — Area and Vulume.
Miðað við meðal Miðaö við hálffallinn
stórstraumsfjöru sjó ( + 1,25m)
Mean low water springs Me an Sea leve ■1
Svæði Flatar- Meðal- Rúmmál Flatar- Meðal- Rúmmál
mál km2 dýpi m km3 mál km2 dýpi m km3
Zune (A rea) (Mean deplh ) ( Volume) Area (Mean depth ) ( Volume)
I''jöruborð að 6 m línu1 2 95.98 3 0.288 110.57 3.63 0.401
fíeach lo 6 m contour Frá 6 m línu að 10 m línu 35.34 8 0.283 35.34 9.25 0.327
From 6 m conlour to 10 m conlour Frá 10 m linu að 20 m linu 94.22 15 1.413 94.22 16.25 1.531
Frorn /Om conlour to 20 m contour Dýpi > 20 m 113.52 29.24- 3.319 113.52 30.49 3.461
(Deþlh ) Samtals Total 339.06 5.303 353.65 5.720
1) Dýptarlínur eiga við sjókort sem miðast við meðaltal stórstraumsfjöru.
2) Meðaltal af öllu dýptartölum innan 20 m dýptarlínu. (33 tölur).
90