Náttúrufræðingurinn - 1981, Blaðsíða 16
meðaltöl flóðhæða við Búðardal og
Staðarfell eigi við fjörðinn sem heild,
reiknast meðal flóðhæð í stórstraumi 2.5
m, en 1.0 m í smástraumi.
Samkvæmt sjókorti, svo og dýptar-
mælingum Friðriks Ólafssonar í
Hvammsfjarðarröst sumarið 1934,
teiknuðum við þversnið af Röstinni á
nokkrum stöðum frá Steinaklettum að
Máshólma. Flatarmál sniðanna voru
fundin með flatarmæli (planimeter), og
var meðaltal 5 jrversniða 10,600 m2.
Þrengst er sundið við Steinaklett, þar
sem þverskurður þess er nálægt 7,500
m-.
Ógerningur er að meta með nokkurri
vissu, hve mikill liluti af heildarrennsli
inn í Hvammsfjörð fer um Röstina og
hve ntikið milli hólma og skerja land-
megin við hana. Líklegt virðist þó, með
hliðsjón af því, hve grynningar eru
miklar beggja vegna Rastarinnar, aö
vatnsskiptin verði langsamlega mest um
hana sjálfa, ef til vill 90% eða meira.
Með því að nota þær tölur sem hér
hafa verið nefndar um flóðhæð og
þverskurðarflatarmál Rastarinnar, svo
og heildarflatarmál Hvammsfjarðar,
var reynt að áætla straumhraða um
Röstina, þar sem hún er þrengst. Gengið
var út frá mjög einföldu líkani, þar sem
gert er ráð fyrir, að um 90% af inn-
streyminu i Hvammsfjörð verði um
Röstina og útfallið nái að flytja allt það
sjávarmagn út úr firðinum, sem inn í
hann berst á aðfalli. Loks er gert ráð
fyrir því til einföldunar, að hvorki yfir-
borðsflatarmál fjarðarins né þver-
skurðarflatarmál Rastar breytist svo
teljandi sé milli flóðs og fjöru. Það
sjávarmagn, sem um röstina fer á 6.2
klst, þ. e. frá háfjöru til háflæðis, hlýtur
þá að vera 90% af því rúmmáli, sem
ákvarðast af flatarmáli alls fjarðarins
sinnum hæðarmun flóðs og fjöru:
A X V X T/2 = 2n„ X SX 90/100(1)
jtar sem A = 7.500 m2 er þverskurðar-
flatarmál Rastar
V er meðalstraumhraöi
T er tíminn, sem líður milli tveggja
flóða, þ. e. 12 klst. og 24 mín.
r)o = sveifluvídd, þ. e. hálf flóðhæðin
sem reiknast 2.5 m í stórstraumi, en 1.0 í
smástraumi
S = 350 km2 er yfirborðsflatarmál
Hvammsfjaröar
A X T X 100
Sýna má fram á (sjá t. d. Sverdrup 1946,
bls. 568), að þegar fallið er harðast,
verður straumhraðinn 71/2 sinnum
meiri en meðalstraumhraðinn. Þá hafa
athuganir leitt i ljós (Sverdrup loc.cit.),
að í miðjum sundum og ósum er
straumhraði oftast nálægt því að vera 'A
meiri en meðalstraumhraðinn hverju
sinni.
Séu nú viðeigandi tölur settar inn fást
þær niðurstöður, sem sýndar eru í Töflu
IV.
Hvað snertir meðal smástraum ber
þessum niðurstöðum mjög vel saman
við þær tölur (6—8 hnútar), sem gefnar
eru upp í Leiðsögubók og áður voru
nefndar. Þá benda niðurstöður til þess,
að í stórstraumi geti straumhraði orðið
geysimikill i Röstinni, eða 15—20
hnútar. Sé hins vegar gert ráð fyrir því,
að verulegur hluti innstreymisins fari
fram milli skerja landmegin við Röst-
ina, verða hin útreiknuöu gildi fyrir
straumhraða í Röstinni samsvarandi
lægri en fram kemur í töflunni.
94