Náttúrufræðingurinn - 1981, Blaðsíða 17
TAFLA IV
Útreiknaður straumhraði (sjómílur á klst.) í Hvammsfjarðarröst í meðal stór-
straumi og meðal smástraumi. — Computed tidal in currents in the channel (Hvamms-
fjarðarröst) at mean spring tide and rnean neap tide.
Hámarkshraði í
miðju sundi
Nlcftalhraði frá háfjöru
aö háflæöi \lcan citncnl
V (hnútar)
knots
I stórstraumi 9.1
Sfiring tide
í smástraumi 3.6
Neap tide
Hámarkshraði \lax. current iti
Max. current mid-channel
n/2 X V (hnútar) 2*/3 X V (hnút
Knots Kiwts
14.4 19.2
5.8 7.7
VATNSHAGUR HVAMMSFJARÐ-
AR
Til þess að geta reiknað út endurnýj-
un sjávarins innan Hvammsfjarðar er
nauðsynlegt að vita ferskvatnsmagnið i
firðinum og ennfremur framburð fersk-
vatns á tímaeiningu. Um hvorugt þess-
ara atriða iiggja fyrir nákvæmar upp-
lýsingar fyrir þann tíma, sem mæling-
arnar ná til.
I ritinu Islenzk vötn (Sigurjón Rist
1956) eru upplýsingar um afrennsli til
sjávar og vatnasvæði, og er byggt á
mælingum á árunum 1948—1955.
Samkvænu því má áætla, að afrennsli
til Hvammsfjarðar sé að meðaltali ná-
lægt 40 1 X sek 1 X km~- og heildar-
vatnasvæðið 1840 km2. Samanlagt
rennsli i Hvammsfjörð verður þá 73.6
m3 X sek 1 að meðaltali.
Þegar talað er um „ferskvatnsmagnið
í firðinum“ er átt við það ferskvatn, sem
jDar hefur blandast sjónum og safnast
fyrir vegna afrennslis i Hvammsfjörð.
Til þess að hægt sé að reikna þetta
ferskvatnsmagn, þarf ekki aðeins að
þekkja seltudreifinguna i firðinum
heldur einnig seltu þess sjávar, sem berst
inn í fjörðinn um Röstina, þ. e. seltu
sjávarins i suðaustanverðum Breiða-
firði.
’Filtölulega fá sýni hafa verið tekin til
seltumælinga úr Breiöafirði. I sunnan-
verðum flóanum á svæði, sem nær frá
Sandi að Grundarfirði að sunnan og að
norðan frá norðaustanveröum Kolluál
(65°03’N, 23°50’V) og inn eftir Bjarn-
eyjaál (að 65° 15’N, 23°17’V), hafa
verið gerðar milli 30 og 40 athuganir á
seltu á árunum 1948—1978, en lang-
flestar þeirra í norðaustanverðum
Kolluál. Meðaltal 11 mælinga á yfir-
borðsseltu á þessum stað (65°30’N,
23°50’V á tímabilinu maí—júní og 6
mælinga á tímabilinu ágúst til septem-
ber, er sem hér segir:
Maí—Júní Ágúst—Seþtember
34.62 (+0.08) %o 34.41 (±0.11) %c
I fjögur skipti voru gerðar samtíma
mælingar innst i Bjarneyjaál og í
norðaustanverðum Kolluál. Sýndu }:>ær,
að yfirborðsselta var að meðaltali 0.09%o
lægri á innri staðnum en þeim ytri. Á
leiðinni frá Bjarneyjaál að mynni
Hvammsfjarðar má búast við enn frek-
ari seltulækkun. Þannig má ætla, að
meðalselta i yfirborði sjávar utan við
95