Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1981, Side 21

Náttúrufræðingurinn - 1981, Side 21
Jónatan Hermannsson, Andrés Arnalds og Ingvi Þorsteinsson: Áhrif áburðar á gróðurfar úthaga INNGANGUR Hér fer á eftir samantekt á nokkrum þáttum úr viðamiklum rannsóknum, sem gerðar hafa verið á viðbrögðum út- hagagróðurs við áburðargjöf. Ingvi Þorsteinsson beitarfræðingur hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins átti frumkvæði að þessum rannsóknum og stóð fyrir þeim um margra ára skeið, en síðan tók Andrés Arnalds, sem einnig er beitarfræðingur hjá rannsóknastofnun- inni, við umsjón þeirra. Tilraunirnar voru gerðar í samvinnu við bændur á viðkomandi stöðum og héraðsráðu- nauta Búnaðarfélags Islands. I þessum rannsóknum var aðalatriðið að kanna áhrif áburðarins á uppskeru, en þær niðurstöður verða iagðar fram á öðrum vettvangi. Hér verður aftur á móti stað- næmst lítillega við áhrif áburðar á teg- undasamsetningu eða gróðurfar úthag- ans. Tilraunir þessar hófust á árunum 1966 til 1972 og voru gerðar á 34 stöðum við fjölbreytileg skilyrði víða um land, bæði til fjalla og á láglendi. Mynd 1. sýnir tilraunastaðina. Tilraunirnar stóðu mjög mislengi eða frá einu sumri upp í ellefu. Stundum féllu úr athuganaár inn á milli, og fáeinar tilraunir fóru alveg forgörðum af ýmsum ástæðum. Að lokum þóttu 28 tilraunir hæfar til uppgjörs. Þær stóðu samtals i 146 tilraunaár eða að meðal- tali 5.2 ár hver. Gróðurathuganir voru gerðar 130 sinnum eða að meðaltali 4.6 sinnum i hverri tilraun. I Töflu I er flokkun tilraunastaðanna eftir gróðurlendi sýnd i mjög grófum dráttum. Hálendistilraunirnar voru á Jökuldalsheiði, Vaölaheiði, Öxnadals- heiði I og II og Gæshólum og Gæshóla- mýri á Snæfellsnesi. Þær voru í 300—600 metra hæð yfir sjó. Mýrarnar Itöfðu allar verið ræstar fram — misvel að vísu — nema Gæshólamýri. Tilraunirnar voru gerðar í girtum hólfum, sem voru lokuð allt sumarið, og naut landið því töluverðrar friðunar. 'Filraunirnar skiptust í fjóra flokka og var skipulag nokkuð mismunandi eftir flokkum. Borin voru saman áhrif mis- munandi áburðargjafar. Tvö fyrstu árin var borið á alla tilraunareitina, nema samanburðarreiti. Síðan var meðferðin þrennskonar. Á suma reiti var ekki borið framar, og sýndu þeir eftirverkun tveggja ára áburðargjafar; þeir verða hér eftir nefndir eftirverkunarreitir. Aðrir reitir fengu eftir þetta áburð reglulega annað hvert ár. I tveimur til- raunaflokkum af fjórum voru auk þess reitir, sem fengu áburð árlega. Innan þessara liða voru reyndir mismunandi Náttúrufræðingurinn, 50 (2), 1980 99

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.