Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1981, Síða 35

Náttúrufræðingurinn - 1981, Síða 35
Hraun 2. mynd. Borholusnið úr nokkrum kjarnaholum í Reykjavík og nágrenni. 1. Ánanaust, 2. Seltjarnarnes, 3. Kópavogslækur, 4. Silfurtún, 5. Arakot, 6. Bátalón. — Borhole profiles from Reykjavík and surroundings. Sandfell sér á móbergið í Ásfjalli, um- hverfis Sólheimatjörn, við Selvatn, neðantil i Lyklafelli og fyrir botni Arnarnesvogs. Móbergið i Arnarnesvogi hefur verið talið botn Reykjavikurgrá- grýtisins og merki þess, að það hafi runnið i sjó við svipaða sjávarstöðu og nú er, eða ívið lægri. Eg tel hins vegar að þetta móberg sé sjálfstæð gosmyndun og mun eldri en hraunið sem yfir liggur. Til þess bendir berggerðin og mikil holu- fylling (ópall o. fl.). Móberg þetta liggur undir grágrýtinu á Arnarnesi og kemur fram í fjörunni við sunnanverðan Kópavog. Eins virðist það koma fram i borholum bæði í Reykjavik, Seltjarnar- nesi og á Álftanesi (2. mynd). Þykkt þess í borholum er þó hvergi yfir 40 m. Móbergsmyndanirnar í Ásfjalli koma einnig fram i Hamranesi. Þarna er mestmegnis um að ræða bólstraberg og kubbaberg, sem mynda þunnt lag á niilli Arnarbælisgrágrýtisins og plagíó- klasdilótts hrauns sem undir liggur. Móbergsmyndanir þessar eru að öllum líkindum til orðnar við gos undir jökli og eru á sama aldri og jökulberg sem sér í undir Arnarbælisgrágrýtinu í Set- bergshamri í Hafnarfirði. SETLÖGIN Á Reykjavíkursvæðinu er mikið um setlög. í um 100 m þykkri opnu sem nær frá Ártúnshöfða við Elliðavog, upp með 1 13

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.