Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 41
I. mynd. Vorstör, Carex caryophyllea Latourr.
Teiknað eftir íslenskum eintökum.
við grástör, Jaó hulstur hennar séu
stundum gis- og stífhærð ofan til, Jjví
hún hefur miklu gisstæðari og leggjuð
kvenöx.
Hér fer á eftir lýsing tegundarinnar,
byggð á hinunt íslensku eintökum:
Jarðstöngullinn með renglum, blöðin
um 1.5 — 2.5 mm á breidd, allsnörp,
styttri en stráið, sem er grannt, sljóstrent
og að jafnaði um 15 — 28 cm á hæð.
Toppaxið með eintómum karlblómum,
sívalt, aflangt, um 10—13 mm á lengd.
Hliðaröxin aflöng, þétt saman, oftast
tvö, legglaus, að jafnaði með eintómum
kvenblómum, 8—12 mm á lengd, mó-
leit, stundum eru þó eitt eða tvö blómfá
kvenöx til viðbótar við rætur toppaxins.
Neðsta stoðblaðið oft grænt og nær upp
á rnóts viö efri enda toppaxins, með
2 — 4 mm löngum slíöurfæti, en stund-
um miklu styttra, sýllaga og móleitt,
eins og efri stoðblöðin. Axhlífarnar ljós-
brúnar, með upphleyptum nriðstreng,
sem er grænn á vorin, en veröur siðar
samlitur axhlífinni, og nær stundum
upp fyrir hlífina og myndar þar brodd.
Hulstrin ljósgræn, 2.5 — 3 mm á lengd,
broddhærð, taugaber, með stuttri, mó-
brúnni trjónu, oft perulaga með eins
2. mynd. Hneta (A) af vorstör, með áföstum
frænum, og hulstur (B).
119