Náttúrufræðingurinn - 1981, Blaðsíða 55
verður það stundum, að heita vatnið
blandast köldu grunnvatni, jafnvel
yfirborðsvatni. Þannig veröur borholu-
og uppsprettuvatnið blanda af jarö-
hitavatni og köldu vatni. Slíkt blandað
vatn má oft þekkja á því, að sýrustig
þess (pH) er verulega lægra en jafna 5 í
Töflu II gefur til kynna og skyldi þá ntiða
við kísilhitann. Svo unnt sé að gera
samanburð á Na + /H + hlutfallinu við
nefnda jöfnu, þarf að reikna sýrustigs-
gildið með þar til gerðu tölvu-
forriti (Stefán Arnórsson o. fl. 1980b).
Kalt vatn inniheldur ætíð minni kísil
en jarðhitavatn. Þess vegna veldur
blöndun lækkun á styrk kísils, sem aftur
leiðir til þess, að útreiknaður kísilhiti
verður nokkru lægri en svarar til hita-
stigs jarðhitavatnsins fyrir blöndun.
Lækkun sýrustigsins (pH), sem verður
oftast samfara blöndun, getur þó vegiö
nokkuð þarna á móti.
Ef styrkur kísils í kalda grunnvatninu
er þekktur, sem og í blandaöa vatninu,
má reikna út hitastig jarðhitavatnsins
fyrir blöndun. Er þá gengið út frá því,
að útfelling kísils eigi sér ekki stað sam-
fara eða á eftir blöndun, né heldur að
kæling með leiðni verði eftir blöndun.
Utreikningurinn er best skýrður með
tilvísun I línuritið á 8. mynd. Lóðrétti
ásinn á línuritinu sýnir heildarstyrk
uppleysts kísils, en sá lárétti varmainni-
hald. Punktur 1 samsvarar syrk kísils í
grunnvatni og varmainnihaldi þess, en
punktur 2 santsvarandi gildum fyrir
jarðhitavatn, sem í þessu tilfelli er í
jafnvægi við kvars, enda fellur punkt-
urinn á ferilinn, sem sýnir uppleysan-
leika kvars sem fall af varmainnihaldi
vatnsins. Allt vatn, sem er blanda af því
heita og kalda, liggur á beinni línu, sem
dregin er gegnum punkta 1 og 2. Hvar
8. mynd. Kísil-varmainnihald línurit, sem
skýrir hvernig meta megi hitastig í jarðhita-
kerfum, þar sem jarðhitavatniö hefur
blandast köldu grunnvatni eða yfirborðs-
vatni i uppstreymisrásum (sjá texta). —
Silica-enthalþy diagram demonstrating how tem-
þeratures in geothermal reservoirs can be eslimaled
when the geotherrnal water has mixed with cold
ground water or surface water in the uþflow (see
text).
blandaða vatnið lendir á línunni
ákveðst af hluta heits og kalds vatns i
blöndunni. Með því að merkja inn á
línurit, eins og 8. mynd sýnir, gilcli fyrir
varmainnihald og kisil I köldu og mis-
blönduðu vatni úr uppsprettum má
draga línu gegnum punktana og fram-
lengja hana til þess að finna skurð-
punktinn við kvarsferilinn. Sá skurð-
punktur samsvarar varmainnihaldi
jarðhitavatnsins fyrir blöndun.
Dæmið að ofan gerði ráð fyrir því, að
allur uppleysti kísillinn væri óklofinn
(H.,SiO.(). Gildir ekki að ganga út frá
því, þegar um er að ræða jarðhitavatn
með sýrustig yfir 9. í slíkum tilfellum er
nauðsynlegt að notfæra sér ríkjandi
samband milli Na+ og H+ í jarðhita-
vatni til að gera leiðréttingu vegna hins
133