Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1981, Qupperneq 57

Náttúrufræðingurinn - 1981, Qupperneq 57
klóríðinnihald er svipað og gerist í köldu grunnvatni. Jarðhitavatn í berggrunni viö 210°C og í jafnvægi við kvars nær ópalmettun við kælingu vegna suðu þegar það verður 100°C. Styrkur kísilsins í vatninu er þá nálægt 380 ppm. Öpal, sem er ókristölluð kísilsteind, fellur auðveld- lega út úr vatnslausn. Má því líta svo á, að 210°C séu efri mörkin á notagildi kvarshitamælisins. Leiði suða í upp- streymisrásum til það mikillar hækkunar á sýrustigi (pH) vatnsins, að verulegur hluti kísilsýrunnar klofni, hækka þessi mörk þó sem svarar til, hversu stór hluti klofnar. Tilraunir Morey o. fl. (1962) sýna, að jafnvægi við kvars næst auðveldlega í tilraunum við hitastig ofan 150°C. Erfitt er að dæma um hraða efnahvarfa í náttúrunni, en liklegt sýnist, að jtað taki marga mánuði að ná jafnvægi við kvars og kalsedón við hitastig lægri en 100°C, en einhverjar klukkustundir ef hitastig er ofan við 250°C. Miðað við vatnsleiöni, sem nemur 1 darcy, væri 100°C vatn um 10 mánuði á leiðinni frá 1000 metra dýpi til yfirborðs. Er þá miðað við þrýstimun, sem nemur 10 loftþyngdum. Þessi vatnsleiöni er e. t. v. hliðstæð þeirri, sem er i uppstreymis- rásum á lághitasvæðum. Niðurstaðan gefur til kynna, að ekki er að vænta verulegra útfellinga til lækkunar á kisil- hita, joótt rennsli sé tregt í uppstreymis- rásum á lághitasvæðum. Nú er mælt með þvi að nota kalse- dónhitamælinn u]tp í 180°C, en kvars- hitamælinn gefi sá fyrrnefndi meira cn 180°C. Þetta hefur í för með sér, að kísilhiti á bilinu 180—200°C er ekki til. Frekari rannsókna er þörf á uppleysan- leika kalsedóns á þessu hitabili og á sambandi rnilli hitastigs í borholum og styrks kísils i holuvatninu, áður en unnt veröur að fyila upp í þessa eyðu. Ekki má útiloka þann möguleika, að kerfisbundið frávik kísilhita frá mældu hitastigi sé til staöar á vissum jarðhita- svæðum umfram meðalfrávik það, sem gefið var upp í Töflu III. Þannig sýna þau tvö sýni, sent valin voru úr borhol- um á Reykjasvæðinu i Mosfellssveit, nokkru lægri kisilhita en mælist i hol- unum. Gæti slikt frávik orsakast af gerð þess kalsedóns, sem uppleysti kisillinn er i jafnvægi við. Nauðsynlegt er að vera opinn fyrir slíkum kerfisbundnum frá- vikurn og bera ætíö vandlega saman mæld hitastig í borholum við kísilhita á þeim svæðum, sem eru í rannsókn hverju sinni. Miðað við kísilhitamælinn er Na-K hitamælirinn varhugaverðari við lág hitastig, þar sem enn erfiðara er að ná efnajafnvægi við feldspat en kalsedón. Fyrir ofan 200°C er Na-K hitamælirinn áreiðanlegri en kvarshitamælirinn vegna meiri tregðu til aö endurnýja jafnvægi samfara kælingu og á það sér- staklega við, þegar vatnið er verulega salt. Það likan, sem ætíð er gengið út frá við notkun efnahitamælanna, er að eitt hitastig riki i berggrunni fyrir það vatn, sem efnahitamælunum er beitt á. Þetta þarf auðvitað ekki að vera svo. Um misheitt vatn getur verið aö ræða og hvort sem er endurnýjun, eða ekki, á efnajafnvægjum eftir blöndun. Sem dæmi má taka, að 50° og 100°C heitt vatn, sem upphaflega var í jafnvægi, blandaðist í jöfnum hlutföllum, en selta jress, jt. e. natríum styrkur, var hin sama. Reiknað Na-K hitastig gæfi 79°C, en raunverulegt hitastig jæssa vatns 135
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.