Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 8

Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 8
1. mynd. Heitt vatn, 64°C kemur út úr klettaveggnum í gljúfri Laugarár norðan við sundlaug. — Thermal water 64°C issues from the wall of the Laugará canyon. stingur mjög í stúf viö þaö, sein ég hafði áður séö á þessu svæði. Mátti þegar af því ráöa að þar væri um að ræða verulega eldri bergmyndanir, en vestan gilsins hyljast þær yngri mynd- unum bæði hraununum og jökulurð- um. Það sem svo einkennir þessa myndun er að hún er gegnumofin af göngum og æðum, sem stefna, að því er virðist við fyrstu sýn, í ýmsar áttir og að bergið milli þeirra er mjög um- myndað. Þetta gamla berg virðist aðal- lega vera basaltískt andesít. Það skal þó tekið fram að lítið hefur enn verið reynt að skyggnast inn í bergfræði þessa svæðis. Ljóst er að austan við gljúfur Laugarár er þessi myndun ráð- andi á umtalsverðu svæði, og skal nú að því vikið. Fyrir botni dals þess, sem áður er getið og sem verður milli Rauðafells að austan og Lambafells að vestan myndar fjallið íhvolfa hlíð, sem minnir á hluta af risavöxnu hringleikahúsi (1. mynd). Inn í þá hlíð vestanverða eru skorin þröng og hrikaleg gljúfur, sem sameinast í eitt fremst og þar fellur Laugará fram. Vestan við hana kemur heitt vatn á nokkrum stöðum út úr hömrunum og fellur niður í ána (2. mynd). Framar koma margar lindir víðs vegar út úr berginu og við þær hefur sundlaugin verið byggð. í grasi gróinni hlíð um 40 m ofan við gilbotn- inn kemur heitt vatn fram. Mestur hiti, sem mælst hefur á þessu svæði er 64°C, en samanlagt rennsli er áætlað 6-8 1/sek. Mikill fjöldi ganga er á þessu svæði og berglög þau í dalstafn- inum, sem neðan úr dalnum séð eru Iíkust því að vera hraunlög, reynast flest vera hallandi eða liggjandi gangar. Jafnframt er bergið verulega ummyndað, holufyllt og síðast en ekki 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.