Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 10

Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 10
3. mynd. Tekið sýni af heitu vatni í Innra-Tungugili. - Sampling thermal water in Innra-Tungugil. Kaldaklifsá er jarðhiti við gljúfurbotn. Þar mældi Einar Gunnlaugsson jarð- fræðingur 80°C hita þann 27. ágúst 1980 (2. mynd). Heitt vatn kemur fram báðum megin árinnar, sem þarna rennur þröngt, og vafalaust kemur það líka upp í ánni. Ekki verður því í það ráðið hvað mikið vatnsmagn þarna kemur upp. Lítil þverskora er í vestri gljúfurbarminn ofan við þennan stað og þar er hverahrúður. Þarna gæti ver- ið um sprungu að ræða. Nokkru innan við þennan stað ganga tvö gljúfragil vestan frá niður í Gilið. Þau heita Innra- og Fremra- Tungugil. Hvort um sig er um 100 m djúpt og ekki getur talist greiðfært um þau. í Innra-Tungugili er jarðhiti á tveim stöðum a.m.k. Annar staðurinn er í urð á botni gilsins alveg við læk- inn, sem eftir því rennur. Þar mældist 66°C hiti en rennsli er örðugt að áætla þar eð þetta kemur upp í stórgrýtisurð (3. mynd) og kaldur lækurinn rétt hjá. Neðar í gilinu fossar heitt vatn út úr þverhníptum hamrinum hátt uppi. Þangað er aðeins fuglinum fljúgandi fært. í tungunni milli giljanna ber tals- vert á kalkmolum í jökulurðinni. Ofar í giljunum er mikil ummyndun og þar er bergið gegnumofið af göngum. I hraunbrík gegnt Hólatungugili er bergið öfugt segulmagnað og eins er við Tungugil, en innskot niðri við Gil- ið er hins vegar rétt segulmagnað, sama er að segja um þá ganga, sem mældir voru á þessu svæði. Af því sem hér hefur verið tekið saman er dregin sú ályktun að þarna sé um að ræða gamla megineldstöð eða elsta hluta þeirrar megineldstöðvar, sem enn er virk og heitir Eyjafjalla- jökull. Sú eldstöð eða þessi hluti þeirrar eldstöðvar er, samkvæmt nið- urstöðum af segulmælingum meira en 0,7 milljón ára, en hversu mikið eldri hún kann að vera er, eins og áður segir, ekki vitað. Sé ég ekkert því til 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.