Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 49

Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 49
Ritfregnir ÍSLENSKIR FISKAR Yfirtitill: Náttúra íslands Gunnar Jónsson Fjölvaútgáfan Reykjavík, 1983, 519 bls. Fyrir réttu ári kom út greiningarbók um íslenska fiska eftir dr. Gunnar Jónsson, fiskifræðing hjá Hafrannsóknastofnun. Eins og segir í formála voru þá liðin 57 ár frá því rit Bjarna Sænrundssonar, Fiskarn- ir, kom út, en sú bók var endurprentuð lítt breytt að meginefni með nokkrum tegundaviðbótum árið 1957. Þrátt fyrir við- bótina voru Fiskarnir fyrir löngu orðnir algerlega ófullnægjandi heimild unr hér- lenda fiskafánu. Þangað til nú var þó vart í annað hús að venda fyrir almenning með greiningu og upplýsingar um íslenska fiska, ef frá er talin ágæt þýðing og staðfær- ing Jóns Jónssonar á danskri bók, Fiskar og fiskveiðar. Sú bók hefur þó sín takmörk þar sem í henni er aðeins að finna myndir og lýsingar af 160 algengum tegundum í N- Atlantshafi. Þörfin fyrir nýja og endur- skoðaða fiskabók var því orðin æði brýn og var það reyndar orðið til vansa að ekki skyldi vera til nýrra uppsláttarrit um það sem þekkt er af uggakyni við landið. Ástæðurnar fyrir því að ný fiskabók hef- ur ekki litið dagsins ljós fyrr eru líklega margar, en einfaldast væri að skýra þetta á þann veg að slfk bók verður ekki hrist fram úr erminni. Gunnar Jónsson sagði einhvers staðar í viðtali, skömmu eftir útkomu bókar sinnar, að hann hefði unnið að þessu verki ásamt öðru í hart nær 10 ár. í íslenskum Fiskum er fjallað um 231 tegund og hefur þá bæst við 71 tegund frá því Bjarni skrifaði sína fiskabók. Þessi mikla viðbót kemur m. a. til af því, að nú er ekki lengur ntiðað við 400 m dýptarlín- una heldur 200 sjómílur, þegar tilgreindir eru íslenskir fiskar og sýnist þessi útfærsla viðmiðunarmarka í liæsta rnáta eðlileg. Margar af þeim tegundum sem bæst hafa í fánuna eru nrjög sjaldgæfar og smávaxnar að auki, og fara fram hjá öðrum en athug- ulum augum. Þær hafa smám saman verið að koma í leitirnar með tilkomu fleiri og viðameiri rannsóknarleiðangra og veiða á dýpra vatni. Upplýsingar um þessar nýju tegundir hafa vart legið á glámbekk og víst er að greining og vinna við slíka fiska er mikil og seinleg. Það getur tekið nrörg ár áður en vísindamaðurinn setur fram á prent lýsingu á nýrri tegund sem fundist hefur við landið. Gunnar Jónsson hefur unnið stórvirki með því að koma öllum upplýsingum heim og saman í eina bók svo nú liggur á borðinu lýsing og tegundaskrá yfir íslenska fiska sem vart mun taka stór- vægilegum breytingum hvað tegundafjölda varðar í náinni framtíð. Eins og höfundur segir í skýringarfor- mála er bókinni fyrst og fremst ætlað að vera tegundalýsing. Væntanlega er því nrinni áhersla lögð á aðrar upplýsingar. Eftir stendur samt sú staðreynd að þessi upplýsingaatriði um lifnaðarhætti, hrygn- ingu, útbreiðslu o. fl., eru iðulega það eina sem menn hafa úr að moða, þegar fræðast skal meira um fiskinn heldur en um nafnið eitt. Ógerningur er að bregða bók sem þess- ari í fljótheitum undir mælistiku áreiðan- leika og gæða upplýsingaatriða. Ég rakst á örfáa staði þar sem eitthvað sýnist hafa skolast til svo úr verða missagnir. Ekki er þetta þó stórvægilegt og ætíð erfitt að girða fyrir allt slíkt í svo miklu upplýsingaflóði. Ekki er höfundi þó annað ætlandi, en að hann liafi fram sett það sem hann veit sannast og réttast um hvert efni. Hitt er svo víst að smám saman mun þekkingunni fleyta fram og með tímanum mun margt þykja vansagt í fræðum þessum og á ég þá sérstaklega við hinar almennu upplýsingar um tegundir sem ekki eru nytjafiskar. Það er staðreynd, að rnikið verk er enn óunnið Náttúrufræðingurinn 55(1), bls. 43-48, 1985 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.