Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 23

Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 23
3. mynd. Kort af norðaustur hluta Kína. Sýnd eru helstu skjálftamisgengi og upptök stærstu jarðskjálfta síðan 1966. Tölur gefa til kynna stærð á Richterskvarða og ártal. Úr grein eftir B. Raleigh o.fl. (1977). - Mup of NE-China, showing major faults and the largest earthquak.es since 1966. Year of occurence and magni- tude are shown. From Raleigh et al. (1977). brunnum og borholum, um hegðun dýra og fleira. Um mitt ár 1974 voru þessar mæl- ingar farnar að skila verulegum ár- angri og var þá spáin tekin til endur- skoðunar. Fundist höfðu virk mis- gengi, stór svæði höfðu Iyfst frá því að mælingar voru síðast gerðar, og halla- breytingar virtust fara vaxandi. Jarð- skjálftavirkni óx merkjanlega fyrstu 5 mánuði ársins 1974 miðað við fyrri ár, og á segulsviðinu mældust breytingar sem rekja mátti til breytinga í jarð- skorpunni. Á fundi sem haldinn var í júní 1974 var ályktað, að líklega yrði skjálftinn á næstu 1-2 áruin, og var stærðin áætl- uð 5-6 stig á Richterskvarða. Hugsan- legt upptakasvæði var einnig þrengt. Á þessu stigi var hafist handa við að dreifa upplýsingum til almennings í héraðinu um eðli jarðskjálfta, jarð- skjálftahættu og almannavarnir. Einn- ig voru mælingar og athuganir stór- auknar. í desember 1974 bárust tilkynningar um breytingar á vatni í brunnum og radoni á nokkrum stöðum, og 22. des- ember varð jarðskjálftahrina nálægt útjaðri svæðisins. Þessir atburðir urðu til þess að enn var hert á viðbúnaði, og voru gerðar ráðstafanir til að koma upplýsingum til allra fjölskyldna á svæðinu. Tilkynningum um óeðlilega hegðun dýra, og breytingar á vatns- borði, radoni og rafstraumum í jörð- inni fjölgaði mjög í lok ársins, og á fundi jarðskjálftafræðinga 13. janúar 1975 var spáin enn endurskoðuð og hljóðaði nú upp á jarðskjálfta að stærð 5,5—6 á fyrstu 6 mánuðum ársins 1975. Þegar hér var komið sögu má því segja að almenningur og vísindamenn hafi almennt verið undir jarðskjálfta búnir, og einungis hafi verið beðið eftir nánari vísbendingum um hvenær hann yrði. Þessar vísbendingar komu fyrstu daga febrúarmánaðar, og er ekki vafi á því að þar hafa forskjálftar vegið þyngst. Skjálftarnir hófust 1. febrúar, en jukust fyrst að ráði að kvöldi 3. febrúar og náðu hámarki fyrir hádegi næsta dag með skjálfta að stærð 4,8. Næstu klukkustundirnar var aftur tiltölulega kyrrt, og virðist sem þessi kyrrð hafi verið tekin sem loka- viðvörun um stóran skjálfta. Það mun vera byggt á reynslu frá fyrri skjálftum í Kína. En það voru einnig önnur teikn á lofti þessa fyrstu daga febrúar. Einn af 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.