Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 36

Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 36
Gr j ótlýj ur „Ég skildi aö orð er á íslandi til um allt, sem er hugsað á jörðu.“ Einar Benediktsson „Þegar ég tók upp á því að kalla „Peles“ hár og „Pelestár“ „norna- þræði“ og „nornatár“ í greinarkorni í Náttúrufræðingnum (44. ár, 1974 bls 109-119) vissi ég ekki að yfir þetta hafði íslenskt orð verið notað fyrir tveim öldum. Nú rekst ég á það í hinni nýju bók um Skaftárelda á bls. 297. Þar er þess getið „sem selsháralíking, sem hefur kom- ið upp úr eldinum, sem um alla jörð, sand og aur, eftir þeirri vind- stöðu, sem ég fyrstur tók vara á, suður á leið er ég sá það á Sandgýgj- um fyrir austan Núpsvötnin, sam- anhvirflað í smokkum af vindinum, og flutti þar af einn með suður til margra eftirsjónar, svo að flestir brutu í því heilann hvað vera mundi, landphysicus Jón Sveinsson kallar það grjótlýjur, sem solverast óbrunnið frá hraungrjótinu, og fýk- ur síðan í loft upp með sandi og svælu.“ Ekki er mér orðið „lýja“ tamt, en kannast hins vegar vel við það notað unt þunnt hár og fínar jurtarætur. í minni sveit var það kallað „rofalýjur“, sem sést í rofum þar sem uppblástur á sér stað. Það eru rætur plantna sem verða eftir, þegar moldin er fokin burt. Þar sem melur (melgras) óx á uppblásturssvæðum var rótum melsins safnað og þær nefndar „saumtag“ og notað í reiðinga (meljur) og einnig sem þvögur við að hreinsa matarílát, mjólkurtrog o. þ. h. Rofalýjur eru rætur annarra plantna og ekki nothæf- ar. Þær varð að varast, þegar saumtagi var safnað. Óneitanlega finnst mér skemmtilegt að vita að íslenskt orð hafi verið notað um þessar myndanir og getur nú hver sem vill valið milli þess og tilbúningsins sent áður er getið. Jón Jónsson Orkustofnun Náttúrufræðingurinn 55(1). bls. 30. 1985 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.