Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 15
Páll Einarsson:
Jarðskjálftaspár
INNGANGUR
Það hefur löngum verið eitt af meg-
inmarkmiðum náttúruvísindamanna
að segja fyrir um náttúruhamfarir og
koma þannig í veg fyrir tjón á lífi og
verðmætum. Hinar ýmsu greinar nátt-
úruvísinda eru þó komnar mislangt á
leið sinni að þessu markmiði. Einna
lengst hafa veðurfræðingar náð.
Veðurspár frá degi til dags eru orðnar
tiltölulega áreiðanlegar, þótt langtíma-
spár um veðurfar séu enn langt und-
an. Eldjallafræðingar geta sagt fyrir
um ýmsa þætti í hegðun eldstöðvar svo
fremi að þeir hafi ráðrúm og aðstöðu
til að koma fyrir tólum sínum og tækj-
um í nágrenni hennar. Fyrir unt það
bil 15 árum álitu flestir jarðskjálfta-
fræðingar það fjarlægan draum að
hægt yrði að segja fyrir um jarðskjálfta
af þeirri nákvæmni að gagn væri að.
Margir trúðu því raunar að jarðskjálft-
ar væru svo tilviljanakenndir atburðir
að það væri helst í verkahring stjörnu-
spekinga og draumaráðningafólks að
reyna að sjá þá fyrir.
Á árunum kringunt 1970 voru gerð-
ar mælingar á nokkrum stöðum í
heiminum sem sýndu svo ekki varð um
villst að mælanlegar breytingar verða á
eiginleikum jarðskorpunnar á undan
a.m.k. sumum jarðskjálftum. Jafn-
framt voru settar fram kenningar sem
skýrðu þessar breytingar. Við tók
tímabil mikillar bjartsýni. Helst leit út
fyrir að öll vandamál væru leyst og
lítið væri eftir annað en að koma fyrir
mælitækjum á réttum stöðum. Há-
nrarki náði bjartsýnin árið 1975, en þá
tókst kínverskum jarðskjálftafræðing-
um að segja fyrir um jarðskjálfta ná-
lægt borginni Haicheng í NA-Kína af
mikilli nákvæmni, og koma þannig í
veg fyrir mikið tjón. Síðan hafa skipst
á skin og skúrir. Nokkrum skjálftum
hefur verið spáð réttilega, aðrar spár
hafa ekki ræst, en stærsta áfallið varð
þegar einn mannskæðasti jarðskjálfti
veraldarsögunnar varð í NA-Kína árið
1976 án þess að unnt væri að gefa út
viðvörun. En þótt nokkuð hafi slegið á
bjartsýnina, þá eru flestir jarðskjálfta-
fræðingar nú sannfærðir um að jarð-
skjálftaspár séu ekki lengur fjarlægur
draumur, heldur verði á næstu ára-
tugum unnt að gefa út viðvaranir unt
jarðskjálfta á sumum hættulegustu
jarðskjálftasvæðunum.
I þessari grein verður reynt að skýra
þær kenningar sem jarðskjálftaspár
byggjast á, rakinn aðdragandi skjálft-
ans í Haicheng og athuganir sem
leiddu til þess að honum var spáð, og
að síðustu verður svipast um á Suður-
landsundirlendi, en því hefur verið
haldið fram, að þar megi búast við
landskjálftum á næstu áratugum. En
fyrst þurfum við að gera okkur grein
fyrir því, hvað felst í orðinu spá.
Náttúrufræðingurinn 55(1), bls. 9-28, 1985
9